Endrick, Marcus Rashford, Kobbie Mainoo, Harvey Elliott og N'Golo Kante og fleiri koma fram í slúðurpakka dagsins.
   sun 02. nóvember 2025 20:57
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir dagsins: Haaland og Paquetá bestir
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Erling Haaland skoraði tvennu í 3-1 sigri Manchester City gegn Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í dag og var valinn sem besti leikmaður vallarins.

Haaland slapp innfyrir háa varnarlínu Bournemouth í tvígang og skoraði framhjá Djordje Petrovic sem kom litlum vörnum við.

Haaland fær 9 fyrir sinn þátt í sigrinum og eru þrír liðsfélagar hans sem fá 8 í einkunn. Gianluigi Donnarumma var verstur í liði heimamanna með 5 í einkunn, sem hann fær fyrir að hafa ekki verið nógu sterkur að verjast hornspyrnu sem Bournemouth skoraði úr.

Petrovic var meðal bestu leikmanna Bournemouth í tapinu, ásamt Álex Jiménez og Tyler Adams. Argentínski miðvörðurinn Marcos Senesi var versti leikmaður liðsins með 5 í einkunn, ásamt Justin Kluivert sem kom inn af bekknum.

Lucas Paquetá var þá besti leikmaðurinn í laglegum endurkomusigri West Ham United. Paquetá skoraði jöfnunarmarkið gegn Newcastle og átti mjög góðan leik þar fyrir utan.

Paquetá fær 8 í einkunn fyrir sinn þátt í sigrinum á meðan langflestir liðsfélagar hans fá 7.

Kantmaðurinn Jacob Murphy skoraði eina mark Newcastle í leiknum og var bestur í liði gestanna með 7 í einkunn.

Man City: Donnarumma (5); Nunes (7), Dias (7), Gvardiol (7), O’Reilly (8); Nico (7), Bernardo (7), Foden (8), Cherki (8), Doku (7), Haaland (9).
Varamenn: Savinho (6), Reijnders (6)

Bournemouth: Petrovic (7); Jimenez (7), Senesi (5), Diakite (5), Truffert (6); Scott (6), Adams (7), Brooks (6), Tavernier (6), Semenyo (6); Kroupi Jr (6).
Varamenn: Evanilson (6), Cook (6), Kluivert (5), Christie (6)



West Ham: Areola (7), Wan-Bissaka (7), Kilman (7), Todibo (7), Diouf (7), Potts (7), Fernandes (7), Summerville (7), Paqueta (8), Bowen (7), Wilson (6)
Varamenn: Soucek (7), Walker-Peters (6)

Newcastle: Pope (6), Krafth (5), Thiaw (5), Botman (5), Burn (5), Bruno (6), Tonali (6), Joelinton (6), Gordon (5), Murphy (7), Woltemade (5)
Varamenn: Schar (6), Ramsey (6), Osula (6), Barnes (6), Elanga (6)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 10 8 1 1 18 3 +15 25
2 Man City 10 6 1 3 20 8 +12 19
3 Liverpool 10 6 0 4 18 14 +4 18
4 Bournemouth 10 5 3 2 17 14 +3 18
5 Tottenham 10 5 2 3 17 8 +9 17
6 Chelsea 10 5 2 3 18 11 +7 17
7 Sunderland 9 5 2 2 11 7 +4 17
8 Man Utd 10 5 2 3 17 16 +1 17
9 Crystal Palace 10 4 4 2 14 9 +5 16
10 Brighton 10 4 3 3 17 15 +2 15
11 Aston Villa 10 4 3 3 9 10 -1 15
12 Brentford 10 4 1 5 14 16 -2 13
13 Newcastle 10 3 3 4 10 11 -1 12
14 Fulham 10 3 2 5 12 14 -2 11
15 Everton 9 3 2 4 9 12 -3 11
16 Leeds 10 3 2 5 9 17 -8 11
17 Burnley 10 3 1 6 12 19 -7 10
18 West Ham 10 2 1 7 10 21 -11 7
19 Nott. Forest 10 1 3 6 7 19 -12 6
20 Wolves 10 0 2 8 7 22 -15 2
Athugasemdir
banner
banner