Man Utd íhugar að selja Ugarte - Liverpool vill leikmann í skiptum fyrir Salah - Vini Jr til Englands?
Álitið - Hvaða lið verður spútnikliðið?
Jökull: Menn klára páskaeggin í kvöld og svo erum við klárir
Álitið - Hvaða lið veldur mestu vonbrigðum?
Hallgrímur Mar eftir að hafa byrjað á bekknum: „Hvað heldur þú?“
KA menn klöppuðu hreindýrum fyrir 0-5 sigurinn
Kristófer Ingi: Ekkert heyrt um samning og fókusa á að spila
Todor Hristov eftir 0-5 tap: „Aðeins dýrara lið en okkar“
Linta svekktur: Ánægður með spilamennskuna
Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“
Alex Freyr: Draugar síðustu leikja sem koma
„Of margir sem eru spurningamerki sem er ekki gott þegar mótið er að hefjast“
Venni eftir sigur í Eyjum: Er alveg í skýjunum
Elías Már um samkeppnina: Erum tveir ólíkir framherjar og styðjum við bakið á hvor öðrum
Óli Skúla um danskan framherja: Þú ert þá að segja mér fréttir
Siggi Höskulds: Það er fokking óþolandi
„Ákvað að skjóta í markmanninn og það virkaði"
Þrennt sem stóð upp úr hjá Jóa Kalla
Álitið: Hver verður stoðsendingahæstur?
Bestur í Mjólkurbikarnum - „Klúbbur sem á ekkert að vera í þessari deild“
Tap í uppbótartíma en Konni er stoltur
   fös 04. ágúst 2017 17:31
Brynjar Ingi Erluson
Bernardo Silva þreytti frumraun sína: Frábært að vera á Íslandi
Bernardo Silva og félagar undirbúa sig undir það að koma inn á völlinn
Bernardo Silva og félagar undirbúa sig undir það að koma inn á völlinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bernardo Silva, leikmaður Manchester City á Englandi, spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið í dag en hann kom frá AS Mónakó í Frakklandi, núna í sumar. Hann lék í 3-0 sigrinum á West Ham í dag á Laugardalsvelli.

Lestu um leikinn: Manchester City 3 -  0 West Ham

Bernardo kom inná sem varamaður í síðari hálfleik og sáust hæfileikar hans strax skína. Hann átti þátt í þriðja marki City er hann skaut boltanum í varnarmann og þá náði Raheem Sterling að skora.

Hann var ánægður með frumraun sína í dag.

„Ég er mjög ánægður með að vera hérna. Fyrstu þrjátíu mínúturnar mínar og mér leið mjög vel og það er gott að vera hérna og vera partur af liðinu," sagði Bernardo.

„Já klárlega. Þetta er bara byrjunin hjá mér því ég var bara að koma til móts við liðið. Ég mun leggja hart að mér og liðið hefur gert mjög vel í síðustu þremur æfingaleikjum og það hefur bætt sig gríðarlega."

Bernardo er hrifinn af Íslandi en eins og Arnautovic hjá West Ham þá þykir honum of kalt hér á landi.

„Ég vona að við getum haldið áfram að gera góða hluti í deildinni. Það er frábært að koma hingað til Íslands, svolítið kalt. Þetta er í fyrsta sinn sem ég kem hingað en það er frábært að vera hér," sagði hann í lokin.
Slapp
banner