Páll Kristjánsson, þjálfari KV, var eðlilega svekktur eftir 2-0 tap sinna manna gegn ÍA í 1. deildinni í kvöld.
KV er nú sex stigum frá öruggu sæti þegar liðið á tvo leiki eftir og BÍ/Bolungarvík sem er fyrir ofan þá á þrjá leiki eftir. Vesturbæingar eru því svo gott sem fallnir í 2. deildina.
KV er nú sex stigum frá öruggu sæti þegar liðið á tvo leiki eftir og BÍ/Bolungarvík sem er fyrir ofan þá á þrjá leiki eftir. Vesturbæingar eru því svo gott sem fallnir í 2. deildina.
,,Það var ákveðinn úrslitaleikur á móti Selfossi í síðustu viku. Sigur í dag gat gefið okkur smá von en því miður fór sem fór. Við vissum að Skagamenn yrðu erfiðir og þeir þurftu að vinna til að tryggja sér upp, og stemningin var með þeim, Línurnar eru farnar að skýrast," sagði Páll við Fótbolta.net eftir leikinn.
,,Mér fannst við spila fínan fótbolta, mér fannst við ágætir. Leikurinn tapaðist á einni og hálfri mínútu. Þeir fá aukaspyrnu og skora og menn missa hausinn í stutta stund. En mér fannst við almennt ekkert síðri aðilinn."
,,Ég verð náttúrulega að vera raunsær, en ef við vinnum síðustu tvo og BÍ tapar síðustu þremur höldum við okkur uppi. En maður er búinn að segja ef og ef í síðustu tíu leikjum og stilla upp mörgum úrslitaleikjum. En meðan það er séns, þá hættum við ekkert."






















