Rogers opinn fyrir því að fara frá Villa - Leipzig setur verðmiða á Diomande - Grealish áfram hjá Everton?
   fös 03. apríl 2026 15:10
Brynjar Ingi Erluson
Mjólkurbikarinn: Stórsigur Aftureldingar - Draumabyrjun norska framherjans
Joacim Holtan skoraði tvö fyrir Aftureldingu
Joacim Holtan skoraði tvö fyrir Aftureldingu
Mynd: Afturelding
Afturelding 6 - 1 Ýmir
0-1 Breki Ottósson ('18 )
1-1 Joacim Emil Godhei Holtan ('41 )
2-1 Elmar Kári Enesson Cogic ('45 )
3-1 Óðinn Bjarkason ('45 )
4-1 Joacim Emil Godhei Holtan ('55 )
5-1 Bart Kooistra ('78 )
6-1 Róbert Agnar Daðason ('86 )
Lestu um leikinn

Afturelding er komin í 16-liða úrslit Mjólkurbikars karla eftir að hafa unnið 6-1 stórsigur á Ými á Malbikstöðinni að Varmá í dag.

Gestirnir í Ými slátruðu KFS 10-0 í síðustu umferð og fengu algera draumabyrjun er Breki Ottósson skoraði beint úr hornspyrnu á 18. mínútu.

Hornspyrnan kom á nærstöngina og í gegnum pakkann og í netið. Klaufalegur varnarleikur hjá Aftureldingu sem svaraði ekki fyr en rúmum tuttugu mínútum síðar.

Joacim Holtan, sem gekk í raðir Aftureldingar á dögunum, jafnaði metin með laglegu marki eftir sendingu frá Elmari Kára Enessyni Cogic og nokkrum mínútum síðar komst Elmar Kári sjálfur á blað með föstu skoti sem Stefán Stefánsson átti að gera betur í að verja.

Óðinn Bjarkason gerði þriðja mark heimamann áður en hálfleikurinn var úti er hann hirti frákast eftir að Stefán varði skot Elmars út í teiginn.

Gotta veganesti inn í hálfleikinn og gerðu Mosfellingar endanlega út um leikinn í þeim síðari.

Stefán átti sendingu sem rataði beint á Elmar sem lagði hann síðan á Holtan sem var ekki í neinum vandræðum með að skora annað mark sitt á 55. mínútu sem var hans fjórða í bikarnum. Tíu mínútum síðar var hann tekinn af velli.

Tuttugu mínútum fyrir leikslok setti Birkir Már Sævarsson boltann í netið en markið dæmt af vegna rangstöðu.

Afturelding skoraði tvö mörk til viðbótar áður en flautað var til leiksloka. Varamennirnir Bart Kooistra og Róbert Agnar Daðason skoruðu sitt markið hvor. Kooistra með skalla eftir frábæra fyrirgjöf frá hægri og þá skoraði Róbert með laglegu skoti eftir sendingu frá Kooistra.

Frábær sigur Aftureldingar sem er komin áfram í 16-liða úrslit bikarsins en bikarævintýri Ýmis er lokið.
Slapp
banner
banner