Nýliði íslenska landsliðsins, Linda Líf Boama, skoraði tvennu fyrir Kristianstad sem vann 4-1 sigur á Djurgården í Íslendingaslag í 2. umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í dag.
Linda Líf hefur byrjað atvinnumannaferil sinn með pomp og prakt, en hún gekk í raðir Kristianstad frá Víkingi eftir síðasta tímabil.
Hún hóf atvinnumennskuna á því að skora tvö mörk í sænsku bikarkeppninni sem hjálpaði liðinu að komast áfram í undanúrslit og hefur hún algerlega fundið takinn með nýja liðinu.
Linda skoraði og lagði upp í fyrsta deildarleiknum á dögunum og fylgdi því vel á eftir með því að skora tvö mörk í sigrinum á Djurgården í dag.
Framherjinn gerði annað og þriðja mark Kristianstad, en fyrra markið kom úr vítaspyrnu. Hún er því með þrjú mörk og eina stoðsendingu í tveimur deildarleikjum.
Linda og Alexandra Jóhannsdóttir byrjuðu báðar hjá Kristianstad en Elísa Lana Sigurjónsdóttir kom inn af bekknum í síðari hálfleik
María Catharina Ólafsdóttir Gros var í byrjunarliði Djurgården sem er með þrjú stig eftir tvo leiki en Kristianstad með fullt hús stiga á toppnum.



