Rogers opinn fyrir því að fara frá Villa - Leipzig setur verðmiða á Diomande - Grealish áfram hjá Everton?
   fös 03. apríl 2026 13:09
Brynjar Ingi Erluson
Frimpong heill og Isak gæti fengið mínútur - „Þetta mun taka tíma“
Jeremie Frimpong er heill heilsu
Jeremie Frimpong er heill heilsu
Mynd: EPA
Alexander Isak er mættur aftur
Alexander Isak er mættur aftur
Mynd: EPA
Meiðsli hollenska bakvarðarins Jeremie Frimpong voru ekki eins alvarleg og haldið var í fyrstu og útlit fyrir að hann verði með Liverpool gegn Manchester City í enska bikarnum á morgun. Sænski framherjinn Alexander Isak gæti einnig fengið mínútur.

Frimpong meiddist í landsleikjaglugganum með Hollandi og sneri aftur til Liverpool.

Hann er þó heill heilsu og tók heila æfingu með Liverpool-mönnum í gær.

Góðar fréttir fyrir Liverpool fyrir lokakafla tímabilsins, en Slot segir leikform Frimpong þó ekki alveg vera upp á tíu.

„Hann virðist vera í fínu standi. Hann tók heila æfingu með okkur í gær og mun æfa aftur í dag, en hann var einn af þessum leikmönnum sem ég var að tala um varðandi Brighton-leikinn. Það sást í seinni hálfleik að hann er enn skrefi frá því að geta spilað á þriggja daga fresti.“

„Síðan fór hann í landsliðsverkefni sem er önnur áhugaverð og erfið ákvörðun að taka varðandi mínútufjölda í leikjum því þeir leikir eru spilaðir á nokkrum dögum og eins og allir vita þá erum við ekki með átta hægri bakverði í hópnum. Þetta verður áhugaverð áskorun, en ég hef fengið að takast á við þær allt tímabilið, þannig ég mun finna svörin við þessu,“
sagði Slot um Frimpong.

Alexander Isak, sem fótbrotnaði í desember, æfði með liðinu í fyrsta sinn í gær og verður líklega á bekknum gegn Manchester City. Slot segir þó stuðningsmönnum að sýna þolinmæði og ekki að búast við að hann mæti í byrjunarliðið í næstu leikjum.

„Það er klárlega of snemmt að búast við því að hann muni byrja inn á. Hann tók fyrstu æfinguna í 101 dag þegar við æfðum í gær og svo æfir hann aftur í dag. Það mun taka tíma að gefa honum margar mínútur, en við munum gera það rétta og koma honum hægt og rólega aftur inn í þetta. Það er samt mjög gott að fá hann aftur á æfingasvæðið og verður enn betra þegar hann er klár að spila,“ sagði Slot.
Slapp
banner
banner