Rogers opinn fyrir því að fara frá Villa - Leipzig setur verðmiða á Diomande - Grealish áfram hjá Everton?
   fös 03. apríl 2026 10:35
Brynjar Ingi Erluson
Fernandes leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni - Jafnaði met Ronaldo
Bruno Fernandes er besti leikmaður marsmánaðar
Bruno Fernandes er besti leikmaður marsmánaðar
Mynd: EPA
Portúgalski miðjumaðurinn Bruno Fernandes er leikmaður marsmánaðar í ensku úrvalsdeildinni en með þessum verðlaunum jafnar hann félagsmet Cristiano Ronaldo.

Fernandes er að eiga stórkostlegt tímabil með United-mönnum sem virðast líklegir til þess að snúa aftur í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.

Hann kom að sex deildarmörkum í síðasta mánuði, en hann skoraði tvö mörk og gaf fjórar stoðsendingar.

Þetta er í sjötta sinn sem hann hreppir þessi verðlaun og hefur nú jafnað félagsmetið hjá United.

Cristiano Ronaldo vann þessi verðlaun sex sinnum á tíma sínum með United og hefur samlandi hans nú jafnað metið.

Fernandes er þá einum verðlaunum frá því að jafna met Harry Kane, Mohamed Salah og Sergio Aguero sem hafa allir unnið verðlaunin sjö sinnum á ferlinum.

Þetta er eitt besta tímabil Fernandes í United-treyjunni en alls hefur hann komið að 24 úrvalsdeildarmörkum. Annað tímabil hans með United er það besta í tölum, en þá kom hann að 29 mörkum í deildinni.




Slapp
banner