„Þetta hefur rosalega mikla þýðingu fyrir KA. Ekki bara það að vinna fyrsta efstu deildar slag þessara liða í 24 ár heldur líka að ná í fyrsta sigur tímabilsins og hægja á þessari blæðingu. Ég held að allir sunnan megin við Glerána hafi loksins fengið góðan nætursvefn, sagði uppaldi KA-maðurinn Almarr Ormarsson í Innkastinu á sunnudag.
KA vann 1-0 sigur á erkifjendunum í Þór á laugardaginn, Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu. Stigasöfnun KA í upphafi móts hafði verið dræm og pressa var komin á Hallgrím Jónasson, þjálfara liðsins.
KA vann 1-0 sigur á erkifjendunum í Þór á laugardaginn, Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu. Stigasöfnun KA í upphafi móts hafði verið dræm og pressa var komin á Hallgrím Jónasson, þjálfara liðsins.
Lestu um leikinn: Þór 0 - 1 KA
„Það var allt gjörsamlega tryllt þarna, ýmsir söngvar sem stuðningsmenn sungu. Meðal annars sungu stuðningsmenn Þórs 'Hann verður rekinn á morgun' og beindu því að Hallgrími Jónassyni, þjálfara KA,“ sagði Elvar Geir og hélt áfram:
„Þættinum barst bréf að norðan sem sagði að það hefði átt sér stað samtal innan KA um framtíð Hadda og að Dóri Árna hefði verið í umræðunni sem mögulegur arftaki. Haddi þurfti svo sannarlega á sigri að halda þarna og það tókst.“
Verður að fá að gera mistök
Hinn 19 ára gamli Markús Máni Pétursson átti frábæra björgun á línu fyrir KA í fyrri hálfleik og var einn besti maður vallarins í grannaslagnum.
Markús, sem er hafsent, byrjaði á bekknum í síðasta leik KA gegn Keflavík en kom þá inn á í hálfleik. Markúsi var hrósað í hástert fyrir framgöngu sína í leiknum.
„Hann hefur byrjað frekar brösulega, gefa mörk á mikilvægum tímum. Þetta er ungur hafsent og hann verður að fá að gera mistök. Því miður fyrir hafsenta eru mistökin oft dýrkeyptari en í öðrum stöðum. Það er gott fyrir hann að eiga svona flotta björgun og heilt yfir flottan leik. Gott fyrir KA að halda hreinu líka,“ sagði Almarr.




