Rodri, miðjumaður KA, var borinn af velli í leik liðsins gegn Þór á laugardag. Hann meiddist á hné og bíður eftir því að komast í myndatöku.
Lestu um leikinn: Þór 0 - 1 KA
„Hann bólgnaði daginn eftir, hann verður allavega ekki með í næsta leik, er að bíða efir myndatöku. Ég veit ekki hvort þetta sé alvarlegt, vonandi ekki, ef ég ætti að giska þá myndi ég halda tvær vikur," segir Hallgrímur Jónasson sem er þjálfari KA.
En hvernig er staðan á Hallgrími Mar, Grímsa, sem sagðist eiginlega ekki hafa æft fyrir síðasta leik?
„Hann var á æfingum með okkur í síðustu viku, en tók ekki fullan þátt. Hann tók verkjalyf og spilaði leikinn, ég er rólegur með hann næstu daga og svo reikna ég með því að hann verði 100% klár. Hann er með eymsli í mjöðminni, hefur verið tæpur. Hann er bara búinn að byrja tvo leiki í sumar, við eigum hann því svolítið inni. Ég reikna með því að hann verði orðinn góður í næsta leik."
„Ásgeir Sigurgeirsson (hné) og Hrannar Björn Steingrímsson (hásin) eru frá í lengri tíma. Svo er spurning með Rodri," segir Haddi.
Framundan hjá KA er heimaleikur gegn ÍBV næsta sunnudag.
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. KR | 5 | 5 | 0 | 0 | 22 - 9 | +13 | 15 |
| 2. Víkingur R. | 5 | 4 | 1 | 0 | 13 - 4 | +9 | 13 |
| 3. Breiðablik | 5 | 3 | 2 | 0 | 8 - 2 | +6 | 11 |
| 4. Fram | 5 | 3 | 1 | 1 | 15 - 9 | +6 | 10 |
| 5. Valur | 5 | 3 | 0 | 2 | 11 - 9 | +2 | 9 |
| 6. Stjarnan | 5 | 2 | 0 | 3 | 11 - 13 | -2 | 6 |
| 7. Þór | 5 | 2 | 0 | 3 | 5 - 11 | -6 | 6 |
| 8. ÍA | 5 | 1 | 2 | 2 | 6 - 10 | -4 | 5 |
| 9. KA | 5 | 1 | 1 | 3 | 5 - 8 | -3 | 4 |
| 10. Keflavík | 5 | 1 | 1 | 3 | 6 - 10 | -4 | 4 |
| 11. FH | 5 | 0 | 1 | 4 | 8 - 15 | -7 | 1 |
| 12. ÍBV | 5 | 0 | 1 | 4 | 6 - 16 | -10 | 1 |



