Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   mið 04. júní 2025 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Verður Pogba í Meistaradeildinni á næsta tímabili?
Paul Pogba.
Paul Pogba.
Mynd: EPA
Paul Pogba hefur rætt við franska félagið Mónakó en hann er að undirbúa það að snúa aftur í bann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi.

Þessi 32 ára gamli miðjumaður hefur ekki spilað fótbolta síðan í september 2023 eftir að hafa fengið 18 mánaða bann fyrir að falla á lyfjaprófi.

Franski miðjumaðurinn var á sínum tíma talinn efnilegasti miðjumaður Evrópu en dalaði eftir mikil meiðslavandræði þegar hann var hjá Manchester United.

Pogba er að skoða sína möguleika um þessar mundir og gerir hann sér enn vonir um að spila í einni af stærstu deildum Evrópu.

Núna er hann orðaður við Mónakó sem er á leið í Meistaradeildina á næsta tímabili en Pogba hefur ekki spilað með félagi frá heimalandinu á sínum meistaraflokksferli.
Athugasemdir