Miklar breytingar munu eiga sér stað innan stjórnar Manchester United í sumar og segir Sky Sports að Sir Dave Brailsford, yfirmaður fótboltamála, muni láta af störfum á næstu dögum.
Brailsford hefur síðustu ár unnið náið með Sir Jim Ratcliffe, hluteiganda Man Utd, og tók hann sér sæti í stjórninni þegar Ratcliffe eignaðist hlut í enska félaginu.
Ratcliffe ætlar að endurstokka í stjórninni og er Brailsford einn af þeim sem munu hætta.
Samkvæmt Sky mun Brailsford halda áfram að starfa hjá INEOS-hópnum.
Brailsford hefur unnið fyrir INEOS frá 2021 og var þá gerður að yfirmanni íþróttamála, en hann mun taka aftur við því starfi.
INEOS á lið í fjölmörgum íþróttum og verður væntanlega nóg að gera hjá Brailsford. Hópurinn á Lausanne Sport, Nice og Man Utd í fótboltanum ásamt því að vera með lið í hjólreiðum og siglingum. Þá á það hlut í Mercedes-AMG Petronas í Formúlu 1 og hlaupaliðinu NN.
Athugasemdir