Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   mið 04. júní 2025 21:20
Brynjar Ingi Erluson
Lengjudeildin: ÍR-ingar á toppinn - Sigur í fyrsta leik Gústa Gylfa
Óðinn Bjarkason kom ÍR-ingum á toppinn
Óðinn Bjarkason kom ÍR-ingum á toppinn
Mynd: ÍR
Ágúst Gylfason náði í sigur í fyrsta leik sínum með Leikni
Ágúst Gylfason náði í sigur í fyrsta leik sínum með Leikni
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Jóhann Þór skoraði tvö í góðum sigri HK
Jóhann Þór skoraði tvö í góðum sigri HK
Mynd: HK
Völsungur vann grannaslaginn gegn Þór
Völsungur vann grannaslaginn gegn Þór
Mynd: 640.is - Hafþór Hreiðarsson
ÍR-ingar eru komnir á toppinn í Lengjudeild karla eftir 2-1 sigur liðsins á Þrótti R. í kvöld og þá unnu nágrannar þeirra í Leikni sinn fyrsta leik í sumar er liðið lagði Fylki að velli, 2-1, í Árbænum.

Leiknismenn unnu fyrsta sigur sinn í Lengjudeildinni í ár með því að leggja Fylki að velli, 2-1, í Árbænum.

Ólafur Hrannar Kristjánsson var rekinn á dögunum eftir slæma byrjun og tók Ágúst Gylfason við.

Það hefur hjálpað að koma með ferska vinda inn í hópinn því á 21. mínútu kom Dagur Ingi Hammer Gunnarsson Leiknismönnum yfir með góðu skoti úr teignum eftir hornspyrnu.

Þegar um stundarfjórðungur var búinn af síðari hálfleiknum gerði Þorsteinn Emil Jónsson annað markið eftir frábæran einleik frá Axel Frey Harðarsyni.

Árni Freyr Guðnason, þjálfari Fylkis, fékk nóg þegar hálftími var eftir og gerði fjórfalda skiptingu sem bar strax árangur, en Þóroddur Víkingsson minnkaði muninn eftir fyrirgjöf Arnars Núma Gíslasonar.

Leiknismenn náðu að hægja verulega á leiknum og halda forystunni, og um leið landa fyrsta sigri tímabilsins.

Þeir eru komnir úr botnsætinu og í 10. sæti með 4 stig, en Fylkir í 9. sæti með 5 stig.

Auðvelt hjá HK

HK vann sannfærandi 4-1 sigur á Selfyssingum í Kórnum.

Gestirnir byrjuðu leikinn betur en HK-ingar unnu sig betur í hann þegar leið á hálfleikinn og náðu að skora tvö mörk áður en gengið var til búningsherbergja.

Jóhann Þór Arnarsson fékk boltann við vítateiginn og var alveg við það að missa hann, en náði einhvern veginn að koma sér framhjá varnarmanninum og skora með góðu skoti.

Tumi Þorvarsson bætti við öðru á 35. mínútu er hann átti skot eða fyrirgjöf rétt fyrir utan teiginn sem var ætluð Þorsteini Aroni Antonssyni. Hann náði ekki til boltans sem hafnaði síðan í netinu.

Varamaðurinn Dagur Orri Garðarsson skoraði þriðja markið sem er oft talað um sem mikilvægasta markið snemma í þeim síðari.

Selfyssingar fengu nóg af færum í leiknum og virtist fyrirmunað að skora þangað til Sesar Örn Harðarson var kynntur til leiks um tíu mínútum fyrir leikslok.

Hann minnkaði muninn á 84. mínútu en nokkrum mínútum síðar gerðu HK-ingar endanlega út um leikinn með öðru marki Jóhanns Þórs sem skoraði með flottu skoti fyrir utan teig.

HK-ingar eru í 3. sæti með 11 stig en Selfoss nú komið í neðsta sætið með 3 stig.

Flott endurkoma í Boganum

Völsungur vann grannaslaginn gegn Þór, 3-1, í Boganum á Akureyri.

Hermann Helgi Rúnarsson skoraði sitt fyrsta meistaraflokksmark á 17. mínútu. Ibrahima Balde fór illa með varnarmenn Völsungs áður en hann kom boltanum á Hermann sem skoraði.

Endurkoma Völsung hófst eftir um hálftíma leik. Rafnar Máni Gunnarsson skoraði með laglegu skoti í fjærhornið og þá skoraði Arnar Pálmi Kristjánsson með föstu skoti yfir Aron Birki Stefánsson í markinu rétt áður en flautað var til loka fyrri hálfleiks.

Jakob Héðinn Róbertsson breikkaði bilið á 59. mínútu með góðu marki eftir skyndisókn og þá gátu Völlarar gert út um leikinn nokkrum mínútum síðar er Ismael Yagoub setti boltann framhjá Aroni Birki í markinu, en Aron Ingi Magnússon var fljótur að koma sér til baka og bjarga á línu.

Völsungur hélt í forystuna og vann leikinn 3-1. Völsungur er í 7. sæti með 9 stig en Þór í 4. sæti með 10 stig.

ÍR-ingar á toppinn

ÍR er komið á toppinn í Lengjudeildinni eftir 2-1 sigur liðsins á Þrótt R. í Breiðholtinu.

Það tók ÍR-inga aðeins 40 sekúndur að skora fyrsta mark leiksins en það gerði Arnór Sölvi Harðarson. Þórhallur Ísak Guðmundsson varði frá Arnóri sem var sloppinn í gegn en ÍR-ingar héldu boltanum.

Emil Nói Sigurhjartarson fékk boltann og reyndi skot sem Þórhallur varði út á Arnór sem skoraði úr frákastinu.

Staðan í hálfleik 1-0 fyrir heimamönnum en Þróttarar voru ekki lengi að jafna í þeim síðari. Jakob Gunnar Sigurðsson stangaði fyrirgjöf Liam Daða Jeffs í netið á 59. mínútu. Annað mark Jakobs í sumar.

Þegar stundarfjórðungur var til leiksloka skoraði varamaðurinn Óðinn Bjarkason sigurmark ÍR-inga. Ágúst Unnar Kristinsson átti sendinguna á Óðin sem setti boltann undir Þórhall og í netið.

ÍR-ingar á toppinn með 14 stig en Þróttur í 5. sæti með 10 stig.

Jafnt hjá Njarðvík og Fjölni

Njarðvík og Fjölnir skildu jöfn, 1-1, á JBÓ-vellinum í Njarðvík.

Bæði mörk leiksins voru skoruð í fyrri hálfleiknum og með aðeins fjórtán mínútna millibili.

Arnleifur Hjörleifsson skoraði fyrir Njarðvíkinga á 7. mínútu með fyrirgjöf sem vindurinn greip og setti yfir Snorra Þór Stefánsson í marki Fjölnis.

Árni Steinn Sigursteinsson jafnaði metin eftir hornspyrnu á 21. mínútu. Reynir Haraldsson tók hornspyrnuna sem kom inn á hættusvæðið og var það Árni Steinn sem náði að koma honum yfir línuna.

Bæði lið fengu færi til að skora í þeim síðari en sættust á að deila stigunum.

Fjölnir er í næst neðsta sæti deildarinnar með 3 stig en Njarðvíkingar í 2. sæti með 12 stig.

Úrslit og markaskorarar:

HK 4 - 1 Selfoss
1-0 Jóhann Þór Arnarsson ('24 )
2-0 Tumi Þorvarsson ('35 )
3-0 Dagur Orri Garðarsson ('51 )
3-1 Sesar Örn Harðarson ('84 )
4-1 Jóhann Þór Arnarsson ('87 )
Lestu um leikinn

Njarðvík 1 - 1 Fjölnir
1-0 Arnleifur Hjörleifsson ('7 )
1-1 Árni Steinn Sigursteinsson ('21 )
Lestu um leikinn

ÍR 2 - 1 Þróttur R.
1-0 Arnór Sölvi Harðarson ('1 )
1-1 Jakob Gunnar Sigurðsson ('59 )
2-1 Óðinn Bjarkason ('76 )
Lestu um leikinn

Fylkir 1 - 2 Leiknir R.
0-1 Dagur Ingi Hammer Gunnarsson ('21 )
0-2 Þorsteinn Emil Jónsson ('59 )
1-2 Þóroddur Víkingsson ('62 )
Lestu um leikinn

Þór 1 - 3 Völsungur
1-0 Hermann Helgi Rúnarsson ('17 )
1-1 Rafnar Máni Gunnarsson ('33 )
1-2 Arnar Pálmi Kristjánsson ('45 )
1-3 Jakob Héðinn Róbertsson ('59 )
Lestu um leikinn
Lengjudeild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    ÍR 6 4 2 0 10 - 3 +7 14
2.    Njarðvík 6 3 3 0 15 - 5 +10 12
3.    HK 6 3 2 1 11 - 6 +5 11
4.    Þór 6 3 1 2 16 - 13 +3 10
5.    Þróttur R. 6 3 1 2 11 - 9 +2 10
6.    Keflavík 5 3 0 2 13 - 7 +6 9
7.    Völsungur 6 3 0 3 9 - 13 -4 9
8.    Grindavík 5 2 1 2 17 - 13 +4 7
9.    Fylkir 6 1 2 3 7 - 10 -3 5
10.    Leiknir R. 6 1 1 4 6 - 19 -13 4
11.    Fjölnir 6 0 3 3 7 - 13 -6 3
12.    Selfoss 6 1 0 5 4 - 15 -11 3
Athugasemdir
banner
banner
banner