Davíð Kristján Ólafsson og félagar hans í pólska liðinu Cracovia eru komnir með nýjan þjálfara fyrir tímabilið.
Cracovia, sem hafnaði í 6. sæti deildarinnar á tímabilinu, er að fá þriðja þjálfarann inn á einu ári.
Á síðasta ári var Jacek Zielinski rekinn frá félaginu eftir slakan árangur og tók Dawid Kroczek við liðinu til bráðabirgða út tímabilið.
Hann náði besta árangri liðsins í fimm ár þegar hann stýrði þeim í sjötta sæti deildarinnar, en hann lét af störfum eftir tímabilið og hefur félagið ráðið slóvenska þjálfarann Luka Elsner í stað hans.
Elsner kemur inn með mikla reynslu. Hann er maðurinn sem kom Le Havre upp í frönsku úrvalsdeildina fyrir tveimur árum og tók síðan við Reims síðasta sumar eftir að Will Still lét af störfum.
Slóveninn var áður með Amiens í Frakklandi, belgísku liðin Kortrijk, Standard Liege og Union St. Gilloise ásamt því að hafa stýrt Pafos á Kýpur. Heima fyrir þjálfaði hann Domzale og Olimpija Ljubljana.
Davíð Kristján hefur átt flottan tíma hjá Cracovia síðan hann kom frá Kalmar fyrir einu og hálfu ári. Hann var fastamaður á síðasta tímabili og kom að sjö mörkum í 32 deildarleikjum sínum.
W sezon 2025/26 wchodzimy z nowym trenerem!
— CRACOVIA (@KSCracoviaSA) June 4, 2025
Nowym szkoleniowcem Cracovii zosta? Luka Elsner, który podpisa? dwuletni kontrakt.
????Wi?cej informacji: https://t.co/dGne8ikC67 pic.twitter.com/HwsGnMjZuJ
Athugasemdir