Manchester United hefur lagt fram fyrsta tilboð sitt í kamerúnska sóknarmanninn Bryan Mbeumo sem er á mála hjá Brentford, en þetta segir David Ornstein hjá Athletic:
Mbeumo er með það í forgangi að ganga í raðir United og hefur félagið nú lagt fram formlegt tilboð.
Ornstein segir að tilboðið hljóðar upp á 55 milljónir punda. Félagið mun þá greiða 45 milljónir punda og tíu milljónir í árangurstengdum greiðslum.
Brentford mun líklegast hafna þessu tilboði enda er það töluvert lægra en félagið vill fá fyrir hann.
Mbeumo, sem er 25 ára gamall, á ár eftir af samningi sínum við Brentford og á félagið möguleika á að framlengja hann um ár til viðbótar.
Sóknarmaðurinn skoraði 20 deildarmörk og gaf 8 stoðsendingar í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni.
Athugasemdir