Manchester City heldur í vonina um að geta gengið frá kaupum á alsírska vinstri bakverðunum Rayan Ait-Nouri frá Wolves fyrir þriðjudag. Sky Sports greinir frá.
Á þriðjudag lokar sérstakur félagaskiptagluggi fyrir félögin sem spila á HM félagsliða og þarf Man City því að hafa hraðar hendur til að skrá hann í hópinn.
Man City hefur ekki enn lagt fram tilboð í bakvörðinn og samkvæmt Sky hafa engin munnleg samskipti átt sér stað við Wolves um leikmanninn.
Ait-Nouri, sem er 23 ára gamall, er samningsbundinn Wolves til 2026 með möguleika á eins árs framlengingu, en félagið vill að minnsta kosti fá 50 milljónir punda fyrir hann.
Sky og Fabrizio Romano segja að Man City vilji ganga frá kaupunum á næstu dögum og fljúga honum síðan út til Boca Raton í Flórida-ríki, þar sem Man City er með bækistöðvar sínar fyrir HM.
Fyrsti leikur Man City verður gegn Wydad frá Marokkó en hann er spilaður í Philadelphia þann 18. júní.
Athugasemdir