Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   mið 04. júní 2025 21:30
Brynjar Ingi Erluson
Þjóðadeildin: Ronaldo skaut Portúgölum í úrslit í annað sinn
Cristiano Ronaldo skoraði sigurmarkið
Cristiano Ronaldo skoraði sigurmarkið
Mynd: EPA
Þýskaland 1 - 2 Portúgal
1-0 Florian Wirtz ('48 )
1-1 Francisco Conceicao ('63 )
1-2 Cristiano Ronaldo ('68 )

Portúgal er komið í úrslit Þjóðadeildar Evrópu í annað sinn í sögunni eftir að hafa unnið 2-1 endurkomusigur á Þýskalandi á Allianz-leikvanginum í München í kvöld.

Þýska liðið fékk nokkra góða sénsa í fyrri hálfleiknum. Leon Goretzka fór illa með gott færi eftir undirbúning Florian Wirtz og Joshua Kimmich og þá sá Marc-andre ter Stegen við skoti Cristiano Ronaldo hinum megin á vellinum.

Diogo Costa, markvörður Portúgala, varði tvisvar frá Goretzka og Nick Woltemade þegar leið á fyrri hálfleikinn, en ísinn brotnaði ekki fyrr en í þeim síðari.

Það var nokkuð umdeilt mark. Florian Wirtz skiptist á sendingum við Kimmich sem lyfti boltanum inn á teiginn á Wirtz sem skallaði boltann í fjærhornið.

Woltemade var í rangstöðu þegar sendingin frá Kimmich kom og hindraði hann Ruben Dias. Virtist hann þar hafa áhrif á sóknina, en markið stóð og áfram hélt leikurinn.

Francisco Conceicao, sem var ný kominn inn á sem varamaður, jafnaði metin þegar hálftími var til leiksloka með frábæru skoti fyrir utan teig og alveg upp við stöng.

Fimm mínútum síðar gerðu gestirnir sigurmarkið og það var auðvitað enginn annar en sjálfur Cristiano Ronaldo sem gerði það af stuttu færi eftir sendingu Nuno Mendes. Mark númer 937 hjá Ronaldo sem sýndi það enn og aftur að hann er ekki dauður úr öllum æðum.

Ronaldo var einmitt líka aðalmaðurinn þegar Portúgal komst síðast í úrslit keppninnar, en þá skoraði hann þrennu í 3-1 sigri á Sviss.

Þjóðverjar settu allt á fullt eftir það en náðu ekki að finna jöfnunarmarkið og er það því Portúgal sem mun leika til úrslita í annað sinn.

Portúgal mætir Frökkum eða Spánverjum í úrslitaleiknum sem fer fram 8. júní á Allianz-Arena.
Athugasemdir
banner