Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
Kristian mætir funheitur í kanadíska kuldann - „Það besta sem maður gerir“
Aron Einar fann fyrir áhyggjum og hræðslu sinna nánustu - „Óþægilegt að vera í landi þar sem eru sprengingar“
Lúðvík ánægður að fá traustið: Riðillinn er galopinn
Gísli Gotti: Átti gott samtal við Arnar
Daníel Tristan hreinskilinn: Hún hefur alveg verið betri
Viktor Bjarki: Geggjað að sjá nafnið en pæli ekki mikið í þessu
Júlíus Mar: Hausinn vildi fara út
„Menn þurfa að vera á tánum til að spila í Víkingstreyjunni“
„Enginn sem óskar sér þess að mæta Víkingi“
Gæðastjórinn ætlar að reikna út xF
Birkir Már: Hefði sagt takk en nei takk væri hann ekki þarna
Víkingar unnu FH og Stjörnuna í dag - „Gera mér virkilega erfitt fyrir að velja í liðið“
Jökull: Yrði mjög sérstakt ef við myndum breyta einhverju þar
Heimir: Vel mannaðir, með frábæran þjálfara og ætla sér stóra hluti
Óskar Hrafn: Hef fullan skilning á því að okkur sé spáð 6. sæti
„Flottasta treyja sem við höfum spilað í"
„Fór frá því að spila yfir í það að mega ekki vera með á æfingum“
Sölvi: Teljum okkur vera með þannig hóp í ár
Stærsti samningur í sögu Víkings
Gylfi vonast til að vera mættur til að vera í landsliðinu - „Vonandi sem lengst“
   mið 04. júní 2025 22:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Arnar Pálmi í sigurvímu: Ótrúlegt að hann fór inn
Lengjudeildin
Fyrirliði Völsungs átti mjög góðan leik í kvöld.
Fyrirliði Völsungs átti mjög góðan leik í kvöld.
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
„Tilfinningin er geggjuð, alltaf geggjað að vinna grannaslag, mikil sigurvíma núna," sagði fyrirliði Völsungs, Arnar Pálmi Kristjánsson, við Fótbolta.net eftir 1-3 útisigur liðsins gegn Þór í kvöld.

Fréttamaður náði tali á Arnari í miðjum fagnaðarlátum Húsvíkinga.

Lestu um leikinn: Þór 1 -  3 Völsungur

„Þetta er ómetanlegur stuðningur sem við fáum hérna, þau gera sé ferð til Akureyrar og það var örugglega ekki mínúta sem það heyrðist ekki í þeim yfir allan leikinn. Það var geggjað að spila þennan leik, við vorum saman í öllu, börðumst fyrir hvorn annan allan tímann, þvílík orka í liðinu og ég gæti ekki verið sáttari."

Arnar Pálmi skoraði glæsilegt mark undir lok fyrri hálfleiks og kom með því Völsungum yfir í leiknum,

„Ég sá að hann ætlaði að hamra honum inn í teig þannig ég ætlaði að fara á fjær, svo skoppar hann einhvern veginn og lendir svona fallega á hægri. Ég hef aldrei skorað áður með hægri, ótrúlegt að hann fór inn. Þetta var 100% besta skot ferilsins með hægri."

Bakvörðurinn mætti sínum fyrrum liðsfélaga, Juan Guardia, í þessum leik. „Það er alltaf erfitt að mæta honum, Juan er mjög góður leikmaður og það var mjög gaman að spila með honum. Ég vissi að það yrði erfitt."

Ætlið þið að fagna almennilega í kvöld?

„Nei, það er bara vinna í fyrramálið þannig við förum bara snemma að sofa," sagði fyrirliðinn.
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst.
Slapp
Athugasemdir
banner