Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   mið 04. júní 2025 18:03
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarliðin í Þjóðadeildinni: Ronaldo og Wirtz byrja - Woltemade þreytir frumraun sína
Cristiano Ronaldo byrjar
Cristiano Ronaldo byrjar
Mynd: EPA
Þýskaland og Portúgal mætast í undanúrslitum Þjóðadeildar karla klukkan 19:00 á Allianz-Arene í Þýskalandi í kvöld.

Florian Wirtz, sem er sagður á leið frá Bayer Leverkusen til Liverpool, er í byrjunarliði Þjóðverja og þá er Marc-andre ter Stegen í markinu.

Nick Woltemade, sem átti frábært tímabil með Stuttgart, er í byrjunarliðinu í fyrsta A-landsleik sínum.

Cristiano Ronaldo, marka- og leikjahæsti landsliðsmaður allra tíma, byrjar hjá Portúgölum. Það vekur hins vegar athygli að Vitinha, einn besti miðjumaður heims í dag, er á bekknum hjá Portúgal, en Ruben Neves, sem leikur með Al Hilal í Sádi-Arabíu, er í byrjunarliðinu.

Þá er Joao Neves, sem spilar á miðjunni með Vitinha hjá Paris Saint-Germain, í hægri bakverði. Sérstakt byrjunarlið hjá Roberto Martinez, svo ekki sé meira sagt.

Þýskaland: Ter Stegen; Tah, Koch, Anton; Mittelstadt, Goretzka, Kimmich, Pavlovic; Woltemade, Wirtz, Sané

Portúgal: Diogo Costa; João Neves, Rúben Dias, Inácio, Nuno Mendes; Rúben Neves, Bruno Fernandes; Bernardo Silva, Pedro Neto, Trincão; Cristiano
Athugasemdir
banner