Florian Wirtz, sem er á leið til Liverpool frá Bayer Leverkusen, var ekkert sérstaklega lengi að vinna stuðningsmenn enska félagsins á sitt band eftir atvik sem kom upp í leik Þýskalands og Portúgal í kvöld.
Wirtz, sem skoraði eina mark Þjóðverja í 2-1 tapinu gegn Portúgal, er við það að ganga í raðir Liverpool.
Leverkusen og Liverpool eru að ná samkomulagi og má áætla að allt verði frágengið á næstu dögum, en Wirtz er þegar búinn að eignast nokkra óvini fyrir komandi leiktíð á Englandi.
Þegar lítið var eftir af leiknum í kvöld steig hann á tær Bernardo Silva, sem er á mála hjá Manchester City, og féll Portúgalinn með svakalegum tilþrifum til jarðar.
Ruben Dias, sem er einnig á mála hjá Man City, og Bruno Fernandes, leikmaður Manchester United, mættu bálreiðir á svæðið og ýttu Wirtz í burtu sem fékk að líta gula spjaldið fyrir fantabragð sitt.
Stuðningsmenn Liverpool eflaust verið ánægðir með Wirtz þarna, enda er Bernardo ekki í miklu uppáhaldi hjá þeim eftir ýmis uppátæki hans í leikjum Man City og Liverpool.
Hahahaha Wirtz pic.twitter.com/mQ28KTqGeA
— The Anfield Wrap (@TheAnfieldWrap) June 4, 2025
Athugasemdir