Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   mið 04. júní 2025 20:34
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu umdeilt mark Wirtz gegn Portúgal
Florian Wirtz fagnar marki sínu gegn Portúgal
Florian Wirtz fagnar marki sínu gegn Portúgal
Mynd: EPA
Florian Wirtz, verðandi leikmaður Liverpool á Englandi, kom Þjóðverjum í forystu gegn Portúgal með umdeildu marki í undanúrslitum Þjóðadeildar Evrópu í kvöld.

Wirtz skoraði markið snemma í síðari hálfleiknum eftir stoðsendingu Joshua Kimmich.

Kimmich fékk boltann frá Wirtz áður en hann lyfti boltanum yfir vörnina og aftur á Wirtz sem stangaði boltann í fjærhornið.

Markið átti líklegast ekki að standa en Nick Woltemade, framherji Þjóðverja, var rangstæður og hindraði Ruben Dias í teignum, en samt sem áður fékk markið að standa.

Portúgal er búið að jafna metin þegar hálftími er eftir en markið gerði Francisco Conceicao.

Sjáðu markið hjá Wirtz
Athugasemdir
banner