Heimild: Mirror
„Það eru tvö orð sem eru óumflýjanleg þegar framtíð Arne Slot hjá Liverpool er rædd: Xabi Alonso," skrifar Andy Dunn, íþróttafréttamaður hjá Mirror.
Alonso er fyrrum leikmaður Liverpool en Dunn segir að skuggi hans yfir Slot sé sífellt að stækka. Það eru um tveir mánuðir síðan Alonso var rekinn frá Real Madrid og hann er án atvinnu.
Alonso er fyrrum leikmaður Liverpool en Dunn segir að skuggi hans yfir Slot sé sífellt að stækka. Það eru um tveir mánuðir síðan Alonso var rekinn frá Real Madrid og hann er án atvinnu.
Dunn segir þó að Slot fái að mörgu leyti ósanngjarna gagnrýni og bendir á að Liverpool sé með hærri stigafjölda undir hans stjórn eftir að hafa unnið titilinn en liðið var með undir Jurgen Klopp 2020-21.
Eftir að hafa unnið eina Englandsmeistaratitil sinn með Liverpool 2020 undir stjórn Klopp var liðið með 46 stig eftir 29 leiki tímabilið á eftir. Liverpool er með 48 stig eftir 29 umferðir þetta tímabilið.
Þá hafi Liverpool verið úr leik í FA-bikarnum á þessu stigi undir stjórn Klopp en liðið mun leika gegn Úlfunum í 5. umferð á föstudag.
„Það var aldrei nein umræða um að Þjóðverjinn yrði rekinn en það eru vangaveltur núna um að Slot verði látinn fara. Það hafa engar hreyfingar verið á samningamálum Slot sem mun eiga eitt ár eftir í sumar. Það yrði ekki dýrt fyrir Liverpool að láta hann fara og fá inn Alonso sem er án félags," segir Dunn.
„Eftir framúrskarandi fyrsta tímabil, og svo þá hluti sem hann hefur þurft að takast á við, þá yrði það gríðarlega grimmt gagnvart Slot að láta hann fara. Hann er með það sem þarf til að leiða topplið í langan tíma en þetta er samt eitthvað sem er auðvelt að sjá fyrir sér að muni gerast."
Athugasemdir



