Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   mið 04. mars 2026 11:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Elías í liði tímabilsins til þessa - „Orðinn að alvöru dýri í markinu"
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Elías Rafn Ólafsson var valinn í lið 22. umferðar dönsku Superliga fyrir frammistöðu sína gegn Bröndby um liðna helgi. Elías varði fjórum sinnum vel í leiknum og segir í umsögn Tipsbladet að Elías hafi komið í veg fyrir að lið hans, Midtjylland, tapaði fleiri stigum í toppbaráttunni. AGF vann sinn leik og fer með fjögurra stiga forskot inn í efra umspilið í dönsku úrvalsdeildinni.

Í kjölfarið var svo Elías valinn í úrvalslið deildarinnar fyrir frammistöðuna fyrstu 22 umferðirnar.

„Elías Ólafsson hefur haldið hreinu sjö sinnum sem er það mesta í deildinni, hann hefur gripið tækifærið og er orðinn að alvöru dýri í markinu á þessu tímabili. Hann hefur bjargað Midtjylland margoft, sérstaklega í leiknum á sunnudag, þar sem Íslendingurinn greip nokkrum sinnum inn í á mikilvægum augnablikum. Elías er, eftir mörg samtöl á skrifstofunni, valinn fram yfir Jesper Hansen hjá AGF," segir í umsögn Tipsbladet.

Fimm leikmenn Midtjylland eru í úrvalsliðinu, fjórir frá AGF, einn leikmaður og þjálfarinn frá SönderjyskE og einn fulltrúi er frá Viborg.

Elías Rafn er fæddur árið 2000 og gekk í raðir Midtjylland árið 2018 frá uppeldisfélaginu Breiðabliki. Elías er aðalmarkvörður landsliðsins og hefur spilað 13 landsleiki. Elías byrjaði mótið á bekknum en kom inn í lið Midtjylland eftir að liðið gerði tvö jafntefli í fyrstu þremur leikjunum. Hann hefur einnig staðið vaktina í 13 Evrópuleikjum á tímabilinu og haldið hreinu átta sinnum.
Athugasemdir
banner
banner