Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   mið 04. mars 2026 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hollywood leikurunum dreymir um Harry Wilson
Harry Wilson.
Harry Wilson.
Mynd: EPA
Wrexham gæti blandað sér í baráttuna um Harry Wilson ef félagið kemur sér upp í ensku úrvalsdeildina.

Wrexham er í eigu Hollywood-leikarana Ryan Reynolds og Rob McElhenney en félagið hefur flogið upp deildirnar síðustu árin og er núna í baráttu um að komast í fyrirheitna landið sem enska úrvalsdeildin er.

Ef Wrexham kemst upp í úrvalsdeildina þá mun félagið væntanlega reyna við nokkur stór nöfn og þar á meðal er Wilson sem hefur verið stórkostlegur með Fulham á tímabilinu.

Wilson er að verða samningslaus í sumar og mun væntanlega fá þónokkur tilboð. Hann hefur verið mikið orðaður við Aston Villa að undanförnu en Wrexham ætlar í baráttuna ef félagið fer upp.

David Moyes, stjóri Everton, er líka mikill aðdáandi Wilson sem hefur skorað tíu mörk á tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner