Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   mið 04. mars 2026 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Mættur aftur eftir erfið meiðsli - „Nota þetta bara sem eldmóð að komast aftur í svona leik"
'Tilfinningin var bara frábær, fyrst og fremst gleði að komast aftur á völlinn og spila fótbolta!'
'Tilfinningin var bara frábær, fyrst og fremst gleði að komast aftur á völlinn og spila fótbolta!'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Halldór Hermann Jónsson, sjúkraþjálfari KA.
Halldór Hermann Jónsson, sjúkraþjálfari KA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Ég reyndi að peppa menn og smita einhverri orku í hópinn. Heima var ég líka með rúmlega mánaðar gamla stúlku sem lét tímann líða hraðar'
'Ég reyndi að peppa menn og smita einhverri orku í hópinn. Heima var ég líka með rúmlega mánaðar gamla stúlku sem lét tímann líða hraðar'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Ég persónulega sé mikil tækifæri, geri allt til að halda mér heilum og sýna hvað ég hef fram að færa'
'Ég persónulega sé mikil tækifæri, geri allt til að halda mér heilum og sýna hvað ég hef fram að færa'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jakob Snær Árnason sneri aftur á völlinn á dögunum eftir að hafa slitið hásin í júlí. Jakob er leikmaður KA og meiddist á æfingu í Danmörku fyrir leik gegn Silkeborg í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Hann missti því af seinni hluta Íslandsmótsins. Hann skoraði sigurmarkið í æfingaleik gegn norska liðinu Strömmen á sunnudag.

Jakob ræddi við Fótbolta.net um endurkomuna á völlinn.

„Tilfinningin var bara frábær, fyrst og fremst gleði að komast aftur á völlinn og spila fótbolta!" segir Jakob Snær sem fæddur er 1997. Hann er mjög fjölhæfur leikmaður, getur leyst margar stöður á vellinum. Hann gekk í raðir KA frá grönnunum í Þór sumarið 2021, en hann er uppalinn hjá KF.

„Ég get ekki sagt að það hafi verið stress, en tilhlökkun klárlega. Við höfum reynt að flýta okkur hægt en mér hefur liðið mjög vel og ekki fundið fyrir óöryggi. Maður reynir þó að fara varlega svona fyrst um sinn enda nokkrar vikur í mót."

„Það var klárlega bónus að tryggja okkur sigurinn. Markið kom eftir góða fyrirgjöf frá Grímsa og ég flikka honum í fjær."


Hrósar sjúkraþjálfaranum
Hvernig hefur endurhæfingin gengið?

„Endurhæfingin hefur bara gengið mjög vel, hrós á Dóra (Halldór Hermann Jónsson, sjúkraþjálfara) okkar. Það er talað um 6-8 mánuði að koma sér af stað og vera orðinn full góður eftir tíu mánuði. Ég spilaði fyrsta leikinn í gær um sjö mánuðum frá aðgerð. Það er því ekki hægt að segja annað en að það gangi vel."

„Ef tímabilið hefði verið í gangi hefði ég meira að segja eflaust farið aðeins fyrr af stað en það hefði ekki verið skynsamlegt á undirbúningstímabili."

„Mér líður klárlega eins og ég geti spilað næsta leik, við vorum að klára æfingaferð hér á Marbella og upphaflegt plan var að geta tekið þátt í flestu þar en stýra álagi. Það fór hinsvegar svo að ég tók þátt í öllu svo ég vona bara að maður geti haldið áfram á sömu braut heima."


Hjálpaði að vera með nýfædda dóttur heima
Jakob sleit hásin daginn fyrir útileikinn gegn Silkeborg í forkeppni Sambandsdeildarinnar í fyrra. Það hefur heyrst að hann hefði átt að byrja leikinn. Hvað gerðist, hversu svekkjandi var það og fórstu langt niður?

„já það passar, ég átti víst að byrja en það þýðir ekkert að spá í því núna. Ég nota þetta bara sem eldmóð að komast aftur í svona leik."

„Auðvitað tók þetta á og meiðslin heilt yfir miklu meira andlegt en hitt. Ég er þó mjög jákvæður að eðlisfari svo ég reyndi bara horfa til þess jákvæða og finna leiðir til að geta hjálpa liðinu á þeim stað sem við vorum á. Ég reyndi að peppa menn og smita einhverri orku í hópinn. Heima var ég líka með rúmlega mánaðar gamla stúlku sem lét tímann líða hraðar."

„,Það sem gerist er að við erum að halda bolta daginn fyrir leik, sennilega svona 10-15 mínútur eftir af æfingunni þegar ég tek svona eitt til tvö skref aftur á bak og spretti svo af stað í átt að boltanum. Þá kemur sæmilegur smellur og ég var alveg viss um að herbergisfélagi minn Biggi Bald hefði hamrað aftan í mig. Lét hann aðeins heyra það en svo þegar hann lét vita ansi oft að hann hafi ekki verið nálægt vissi ég um leið hvað hafði gerst og lá bara eftir."


Ekki bara eitthvað neikvætt eins og umtalið er oft
Hvernig leggst sumarið í þig?

„Ég er bara mjög spenntur fyrir sumrinu. Liðið hefur verið að ganga í gegnum miklar breytingar undanfarin ár en það er bara partur af þessu. Þá opnast dyr fyrir unga að taka næsta skref og fyrir okkur hina að stíga upp og taka enn meiri ábyrgð."

„Það er fullt af spennandi hlutum að gerast hjá félaginu, ekki bara eitthvað neikvætt eins og umtalið er oft. Eðlilega tekur tíma að móta lið við breytingar þegar ákveðinn kjarni hverfur af braut en við erum bara í vegferð, ansi nánir og horfum bara fram og upp á við. Ég persónulega sé mikil tækifæri, geri allt til að halda mér heilum og sýna hvað ég hef fram að færa,"
segir Jakob Snær.

Framundan hjá KA er leikur gegn Grindavík í Lengjubikarnum á sunnudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner