Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   mið 04. mars 2026 13:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Van Dijk lét samherja sinn heyra það eftir sigurmarkið
Mynd: EPA
Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, var mjög ósáttur við samherja sinn, Federico Chiesa, eftir að Wolves komt í 2-1 á 94. mínútu. Hollenski miðvörðurinn öskraði á ítalska sóknarmanninn fyrir lélegan varnarleik.

Eftir að Wolves vann boltann á miðjum vallarhelmingi Liverpool sýndi Chiesa, sem hafði komið inn á sem varamaður, takmarkaðan áhuga á því að verjast. Andre skoraði sigurmarkið með skoti sem fór af varnarmanni og í netið.

„Það er alltaf pirrandi að fá á sig mörk. Við höfum haldið nokkrum sinnum hreinu og mér finnst hafa verið nokkuð góðir varnarlega. En heyriði, svona er þetta, við verðum að hafa hraðar hendur því við komum aftur hingað eftir nokkra daga og mætum þeim í bikarnum. Við verðum að svara fyrir þetta tap," sagði Van Dijk eftir leikinn.

Liverpool goðsögnin Steven Gerrard kenndi Alisson um markið fyrir lélegan bolta upp völlinn og sein viðbrögð miðjumanna að reyna verjast. Stephen Warnock kenndi Curtis Jones um markið fyrir lélega sendingu á Alisson sem sendi svo boltann upp völlinn.



Athugasemdir
banner
banner