Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   mið 04. mars 2026 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fór í leyfisleysi í viðræður við eigendahóp Chelsea
Filipe Luis.
Filipe Luis.
Mynd: EPA
Það vakti mikla athygli í gær að Filipe Luis var rekinn frá Flamengo í Brasilíu eftir 8-0 sigur gegn Madureira.

Á síðasta ári vann liðið fjölda titla undir stjórn Luis eða alls sjö. Hann vann titil á að meðaltali fjórtán leikja fresti eftir að hann tók við af Tite í september 2024.

Því hefur þessi brottrekstur vakið mikla furðu en í brasilískum fjölmiðlum er fjallað um það að samband Luis við Luiz Eduardo Baptista, forseta Flamengo, hafi farið versnandi að undanförnu eftir að hann ræddi við eigendahóp Chelsea án þeirra leyfis.

Luis ræddi við eigendahóp Chelsea eftir að Enzo Maresca var rekinn í byrjun þessa árs. Þeir höfðu áhuga á að ráða hann sem stjóra Strasbourg, sem er systurfélag Chelsea.

Þetta var fyrsta stjórastarf hins 40 ára gamla Luis en hann er fyrrum leikmaður Atletico Madrid, Chelsea og brasilíska landsliðsins.
Athugasemdir
banner