Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   mið 04. mars 2026 12:43
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Guardian 
Ungir Frakkar keyptir í hrönnum til Sádi-Arabíu
Saimon Bouabré (til vinstri) í leik með franska U21 landsliðinu var keyptur frá Mónakó til Neom í Sádi-Arabíu í fyrra og svo til Al-Hilal nú í janúarglugganum.
Saimon Bouabré (til vinstri) í leik með franska U21 landsliðinu var keyptur frá Mónakó til Neom í Sádi-Arabíu í fyrra og svo til Al-Hilal nú í janúarglugganum.
Mynd: EPA
Mohamed Kader Meite gekk í raðir Al-Hilal.
Mohamed Kader Meite gekk í raðir Al-Hilal.
Mynd: Al-Hilal
Peningarnir flæða í fótboltadeild Sádi-Arabíu og kaup á stórstjörnum eins og Cristiano Ronaldo, Neymar, Karim Benzema og N’Golo Kanté vöktu mikla athygli á deildinni.

Nú hafa félögin hinsvegar verið að taka nýja stefnu í kjölfar þess að deildin leyfði fjölgun á erlendum leikmönnum ef þeir eru undir 21 árs aldri. Félög í Sádi-Arabíu hafa sótt efnilega franska leikmenn í hrönnum. En af hverju aðallega frá Frakklandi?

Franska deildin stendur ekki vel gagnvart samkeppnisdeildum sínar fjárhagslega og vandamál hafa verið í kringum sjónvarpsréttindi deildarinnar.

Í Frakklandi er allt morandi í ungum og efnilegum leikmönnum og félögin hafa notað þá söluvöru til að fá inn tekjur. Markaður sem Sádarnir eru heldur betur til í að nýta sér.

„Eina leiðin fyrir frönsk félög til að halda dampi er að selja mun fleiri leikmenn en við kaupum," segir Thiago Scuro, framkvæmdastjóri Mónakó, við Guardian þar sem fjallað er um hvernig Al-Ittihad bjargaði félaginu frá fjárhagslegum vandamálum.

Hætta var á að félagið fengi refsingu frá UEFA og stefndi í að það þyrfti að selja einhverja af stjörnum sínum. En þess þurfti ekki eftir að Al-Ittihad keypti George Ilenikhena, 19 ára sóknarmann sem hafði aðeins byrjað þrjá deildarleiki á tímabilinu, fyrir 33 milljónir evra.

„Nú stöndum við vel gagnvart reglum UEFA. Ég vildi halda George en þurfti að taka bestu ákvörðunina fyrir félagið. Það er jákvætt að við fundum lausn varðandi fjárhagsstöðuna en það er líka leiðinlegt að svona efnilegur leikmaður fer," segir Scuro.

Rennes þekkir þessa stöðu líka en félagið seldi einn sinn efnilegasta leikmann, Mohamed Kader Meité, til Al-Hilal fyrir 30 milljónir punda í janúarglugganum. Nathan Zézé, Valentin Atangana, Amadou Koné og Saimon Bouabré eru meðal annarra ungra leikmanna sem hafa verið seldir frá Frakklandi til Sádi-Arabíu í síðustu gluggum.

Leikmönnunum bjóðast há laun í Sádi-Arabíu og nokkuð öruggur spiltími. Þá eru trúarlegar ástæður einnig en margir af þessum leikmönnum eru múslimskir. Leikmennirnir líta flestir á það sem hliðarskref að fara til Sádi-Arabíu þar sem þeir vonast til að vekja áhuga stórra félaga í Evrópu.
Athugasemdir
banner
banner