A landslið kvenna mætir Skotlandi í vináttuleik á La Manga mánudaginn 21. janúar en KSÍ tilkynnti þetta í dag.
Um er að ræða fyrsta leik liðsins undir stjórn Jóns Þórs Haukssonar sem var ráðinn þjálfari Íslands í haust.
Jón Þór tekur við af Frey Alexanderssyni sem hefur þjálfað kvennalandsliðið undanfarin ár.
Íslenska liðið fór einnig til La Manga í janúar á þessu ári, en þá mætti það Noregi.
Ísland hefur leik í undankeppni EM næsta haust en dregið verður í riðla þar í febrúar.
Athugasemdir