Ugarte efstur á óskalista Newcastle - Skotmark Liverpool og Chelsea kostar 60 milljónir - West Ham og Tottenham vilja miðjumann Barcelona
Sterkastur í 1. umferð - Þetta var erfiður leikur maður
Sigurjón Rúnars: Tíu mínútna kafli sem við slökktum á okkur
Lárus Orri: Markús Páll og Viktor Jóns ná vel saman
Markús Páll: Alltaf gaman að skora, af hverju ekki að fagna?
Rúnar Kristins: Hafði ekki hugmynd um að Markús Páll væri á leiðinni til Íslands
Jökull: Það var bara óþarfi
Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á
Haddi: Mjög svekkjandi það sem ég heyri
Siggi um ummæli Hemma: Hann má alveg halda það
Halli Gumm: Sex mínútur eftir - Þurfum að geta haldið þetta út
Hemmi eftir tap gegn Þór: Stjórnuðum leiknum frá A til Ö
Sextán ára hetja KR - „Er það ekki sem fólkið vill?“
Óskar Hrafn: Svona frammistaða í fyrra hefði skilað okkur 4-3 tapi
Diljá Ýr: Mörkin liggja í loftinu
Ingibjörg: Maður lærir ótrúlega mikið af þessum leikjum
Sandra María: Sallaróleg og veit að mörkin koma
Viggó ánægður að vera kominn aftur heim
Aleksandar Linta: Eigum séns gegn Val
Jói Kalli: Litlir í okkur í fyrri hálfleik
Hlín Eiríks: Það er ekki hægt að vinna fótboltaleik nema maður skori
   mán 08. september 2014 08:00
Alexander Freyr Tamimi
Raggi Sig: Það verður pottþétt uppselt
Varnarjaxlinn Ragnar Sigurðsson er til í slaginn.
Varnarjaxlinn Ragnar Sigurðsson er til í slaginn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ragnar Sigurðsson, varnarmaður íslenska landsliðsins, er fullur tilhlökkunar fyrir komandi leik gegn Tyrklandi í undankeppni EM 2016.

Leikurinn á Laugardalsvelli á þriðjudag verður sá fyrsti í nýrri keppni og Ragnar ræddi málin við Fótbolta.net á landsliðsæfingu í gær.

,,Menn eru mjög vel gíraðir. Það er búið að vera góð stemning síðan við mættum og góðar æfingar, þannig að allir eru klárir. Það er mjög gott að ná inn mörgum æfingum og vinna í taktísku hlutunum þar sem við fengum ekki æfingaleik," sagði Ragnar við Fótbolta.net.

,,Þetta er hörkulið og það eru fleiri hörkulið í þessum riðli, en við erum bjartsýnir á fyrsta leik í þessum riðli. Það er mikill meðbyr og sjálfstraust og þjóðin er á bakvið okkur, en við megum klárlega ekki ofmetnast. Við þurfum að vinna fyrir þessu alveg eins og í síðustu keppni."

Ragnar býst við góðum stuðningi frá áhorfendum, enda er verulega góð stemning komin með landsliðinu.

,,Það verður pottþétt uppselt. Tólfan verður á sínum stað þannig það verður góð stemning á vellinum," sagði Ragnar.

Ragnar fór í endajaxlatöku á dögunum en segist nokkurn veginn vera búinn að jafna sig.

,,Það er einhver smá bólga eftir, en það skiptir engu máli. Þegar leikurinn byrjar gleymist allt svoleiðis, ég verð pottþétt orðinn góður á þriðjudaginn," sagði varnarmaðurinn, sem hrósaði Alberti Brynjari Ingasyni vini sínum og Fylkismanni fyrir frábært orðagrín á Facebook.

Albert setti inn myndband á Facebook eftir endajaxlatöku Ragnars sem hefur fengið yfir 200 like og á þriðja tug deilinga.

,,Þetta var mjög fyndið, þetta er bara classic Albert. Hann fékk líka mjög góðar viðtökur við þessu á Facebook einmitt," sagði Ragnar hress að lokum.
Slapp
banner