Liverpool gerir lokatilboð í Wirtz - Real Madrid reynir að stela Zubimendi - Grealish til Everton?
   mán 09. júní 2025 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
PSG ætlar að bæta tilboðið í Zabarnyi
Mynd: EPA
Stórveldi PSG er að reyna að kaupa miðvörðinn Illya Zabarnyi úr röðum Bournemouth en viðræður hafa reynst erfiðar.

Bournemouth neitar að lækka verðmiðann á Zabarnyi, sem er efstur á óskalista Luis Campos fyrir miðvarðarstöðuna. PSG er staðráðið í því að kaupa nýjan miðvörð í sumar og er Mario Gila, varnarmaður Lazio, næstefstur á óskalistanum.

Gila er þó einnig eftirsóttur af Bournemouth og Chelsea en Lazio metur hann á 40 milljónir evra.

Til samanburðar vill Bournemouth ekki selja Zabarnyi fyrir minna en 70 milljónir evra, eftir að hafa selt Dean Huijsen til Real Madrid fyrir svipaða upphæð fyrr í sumar.

Zabarnyi er 22 ára landsliðsmaður Úkraínu með fjögur ár eftir af samningi við Bournemouth.

Fabrizio Romano segir að PSG muni nota næstu daga til að reyna að ná samkomulagi við Bournemouth um Zabarnyi. Ef það tekst ekki mun félagið snúa sér að næsta skotmarki.
Athugasemdir
banner
banner