Marc-Andre ter Stegen, markvörður Barcelona, virðist ekki vera ánægður hjá félaginu þessa stundina.
Ter Stegen var aðalmarkvörður liðsins en meiddist illa á hné í september í fyrra og var frá keppni í sjö mánuði.
Börsungar sannfærðu Wojciech Szczesny um að taka markmannshanskana af hillunni til að fylla í skarðið og stóð Pólverjinn sig feykilega vel.
Hann stóð sig svo vel að Ter Stegen missti byrjunarliðssætið sitt. Þýski markvörðurinn kom aftur úr meiðslum og var ósáttur þegar hann fékk ekki þann spiltíma sem hann vildi. Hann neitaði því að kveðja stuðningsmenn í titilfögnuði Börsunga, sem fór mjög illa í Hansi Flick þjálfara og Joan Laporta forseta.
Í kjölfarið virðist Barcelona vilja selja Ter Stegen en markvörðurinn neitar að fara. Hann er reiður út í félagið, hann sakar Barcelona um að hafa lekið neikvæðum upplýsingum til fjölmiðla í tilraun til að losa sig við markvörðinn.
Spænski miðillinn Sport segir að Ter Stegen hafi engan áhuga á að fara í viðræður við Barcelona. Hann er samningsbundinn félaginu til 2028 og ætlar að virða það samkomulag.
Sport segir að Ter Stegen sé bálreiður og í vígahug. Hann ætli ekki að gefa neitt eftir. Eina sem getur sannfært hann um að skipta um félag er samsvarandi samningstilboð frá öðru stórveldi.
Athugasemdir