Mbeumo gæti farið með Frank til Tottenham - Newcastle reynir við Joao Pedro - Hvert fer Leao?
   sun 08. júní 2025 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Theo Hernández er enn að hugsa sig um
Theo Hernández á 38 landsleiki að baki fyrir Frakkland.
Theo Hernández á 38 landsleiki að baki fyrir Frakkland.
Mynd: EPA
Franski bakvörðurinn Theo Hernández er enn að hugsa sig um varðandi næsta skref á ferlinum.

Hernández er aðeins með eitt ár eftir af samningi sínum við AC Milan og virðist ekki vilja skrifa undir nýjan samning við félagið.

Milan náði þá samkomulagi við sádi-arabíska stórveldið Al-Hilal um kaup á bakverðinum fyrir 35 milljónir evra.

Það er liðin vika síðan samkomulagið náðist en Hernández hefur ekki gefið neitt svar. Hann er ekki sannfærður um að það sé rétt skref fyrir sig að flytja til Sádi-Arabíu á þessum tímapunkti ferilsins.

Hernández er 27 ára gamall og hefur verið einn af allra bestu bakvörðum ítölsku deildarinnar undanfarin ár. Al-Hilal bauð leikmanninum risasamning en félagið þarf að fá svar á næstu dögum áður en félagaskiptaglugginn fyrir HM lokar á þriðjudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner