Mbeumo gæti farið með Frank til Tottenham - Newcastle reynir við Joao Pedro - Hvert fer Leao?
   sun 08. júní 2025 23:15
Ívan Guðjón Baldursson
Ronaldo hágrét þegar Portúgalir unnu vítakeppnina
Ronaldo hefur skorað 138 mörk í 221 landsleik með Portúgal. Ótrúlegur íþróttamaður.
Ronaldo hefur skorað 138 mörk í 221 landsleik með Portúgal. Ótrúlegur íþróttamaður.
Mynd: EPA
40 ára gamall Cristiano Ronaldo var í byrjunarliði Portúgal sem mætti nágrönnum sínum frá Spáni í úrslitaleik Þjóðadeildarinnar fyrr í kvöld.

Ronaldo tókst að skora seinna jöfnunarmark Portúgala í venjulegum leiktíma sem fór með leikinn í framlengingu. Lokatölur urðu 2-2 þrátt fyrir yfirburði Spánverja í fyrri hálfleik, en leikurinn var jafn og tíðindalítill í seinni hálfleik og í framlengingunni.

Ronaldo spilaði úrslitaleikinn þrátt fyrir að vera meiddur en á lokamínútunum gat hann ekki meir og bað um skiptingu. Goncalo Ramos kom inn í hans stað á 88. mínútu.

Hvorugu liði tókst að skora í bragðdaufri framlengingu svo þurfti vítakeppni til að skera úr um sigurvegara. Þar skoruðu Portúgalir úr öllum spyrnunum sínum á meðan Álvaro Morata fyrirliði Spánverja klúðraði fjórðu spyrnu sinna manna.

Ronaldo fylgdist gríðarlega spenntur með á hliðarlínunni og réði ekki við tilfinningarnar eftir lokaflautið. Hann grét af gleði enda tókst honum að hjálpa Portúgal að sigra þriðja stóra titilinn í sögu landsliðsins eftir að hafa unnið Þjóðadeildina 2019 og Evrópumótið 2016.

Sjáðu Ronaldo hampa titlinum

Cristiano Ronaldo in tears as Portugal wins UEFA Nations League on penalties
byu/SubjectTumbleweed216 insoccer



Athugasemdir
banner