Chelsea ætlar að reyna að kaupa Jamie Bynoe-Gittens frá Borussia Dortmund fyrir lok félagaskiptagluggans fyrir HM félagsliða, sem lokar á þriðjudaginn.
Dortmund hafnaði fyrsta tilboði Chelsea í Gittens en enska stórveldið ætlar að bjóða aftur í hann á næstu dögum til að reyna að skrá kantmanninn knáa til leiks á HM.
Dortmund vill fá 50 til 60 milljónir evra fyrir leikmanninn en fyrsta tilboð Chelsea hljóðaði upp á rúmar 35 milljónir.
Maresca vill nýjan kantmann til að veita Pedro Neto og Noni Madueke samkeppni um byrjunarliðssæti á HM. Jadon Sancho verður ekki áfram og Mykhaylo Mudryk er í leikbanni.
Ef Gittens verður ekki keyptur gæti hinn 19 ára gamli Tyrique George fengið góðan spiltíma á HM í sumar.
Athugasemdir