Arsenal vill unga spænska varnarmenn - Sancho orðaður við aðra endurkomu til Dortmund - Tottenham vill Trafford
Katla: Er alltaf að segja henni að koma og spila með íslenska landsliðinu
Sölvi Geir: Skotmarkið á okkur er stærra og við þurfum að gera meira
Arna Eiríks klár í slaginn: Ekki alveg þessi týpísku meiðsli
Gísli Eyjólfs: Hefði verið rómantík að fá að enda ferlana saman
Spáin kom Sigga á óvart: Eina sem þetta gerir er að henda bensíni á klúbbinn
Haraldur Freyr: Ætlum að ná í sigur í Frostaskjóli
Jói Kalli: Spurning hvort það verði Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn
Ísak nýr fyrirliði FH: Var einn af þeim yngri en orðinn einn sá elsti
Kosinn bestur fyrir mót - „Stoltur og pínu kitl að leikmenn kjósi mann"
Hemmi segist elska Brazell - „Alltaf eitthvað blaður og bull“
Álitið - Hver fer í agabann?
Þrjú slit og fimm aðgerðir á milli marka - „Maður er svolítið eins og krakki aftur"
Bestur í Mjólkurbikarnum: Ferðalagið viðbjóður en er enginn sjómaður
Fer yfir leikinn sögulega - „Veit ekki hvað Jói Kalli hefði gert væri hann þarna“
Álitið - Hvað mun koma mest á óvart?
Ægir Jarl ræðir heimkomuna - „Kitlar rosalega að ná að spila“
Gunnar Már: Ætlum okkur stóra hluti í sumar
Arnór Ingvi: Hefðum viljað spila á Meistaravöllum og fá smjörþefinn af því sem koma skal
Óskar Hrafn: Leggst yfir okkur hræðsla sem við höfum ekki fundið fyrir í vetur
Frammistaðan ekki áhyggjuefni - „Skal hundur heita ef það verður skorað flottara mark í sumar“
   mið 09. nóvember 2016 13:35
Elvar Geir Magnússon
Parma
Hörður Björgvin: Vonandi eru þessar fréttir sannar
Icelandair
Hörður Björgvin vill komast í Premier league sem fyrst.
Hörður Björgvin vill komast í Premier league sem fyrst.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
„Það er auðvitað alltaf gaman þegar svona stór lið eru að fylgjast með manni. Vonandi er eitthvað rétt í þessu," segir landsliðsmaðurinn Hörður Björgvin Magnússon um fréttir þess efnis að Everton og Tottenham hafi áhuga á að fá hann í sínar raðir.

„Markmiðin liggja alltaf upp á við og vonandi kemst maður í Premier league eins fljótt og hægt er."

Herði hefur gengið mjög vel síðan hann kom í enska boltann en hann gekk í raðir Bristol City í Championship-deildinni síðasta sumar. Þar hefur hann leikið vel og vakið athygli fyrir frammistöðu sína.

„Þetta er búið að vera rosalega gaman. Það er aðalástæða þess að mér gengur svona vel. Það er rosagott að vera þarna og ég er hrikalega ánægður með þetta," segir Hörður sem telur sig vera að taka bætingum hjá Bristol.

„Ég get alveg séð það sjálfur. Ég hef aðlagast enska boltanum vel og tekið framförum. Vonandi held ég áfram að bæta mig sem leikmaður."

Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan en þar talar Björgvin meðal annars um að gott sé að koma aftur til Ítalíu þar sem hann spilaði áður en hann fór til Bristol. Hörður er ásamt öðrum landsliðsmönnum Íslands í Parma að búa sig undir stóran leik í Zagreb á laugardag þar sem leikið verður gegn heimamönnum í undankeppni HM.
Slapp
banner
banner