Rashford lækkar launakröfur til að komast til Barcelona - Napoli vill Kiwior - Aston Villa í leit að markverði
   mið 09. nóvember 2022 23:12
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Ekkert gengur hjá Atlético
Atlético er í lægð
Atlético er í lægð
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Atlético Madríd er nú án sigurs í síðustu þremur leikjum sínum í La Liga á Spáni eftir að liðið tapaði fyrir Real Mallorca í kvöld, 1-0.

Vedat Muriqi skoraði eina mark leiksins fyrir Mallorca á 16. mínútu en Atlético er í mikilli lægð þessa dagana.

Liðið er úr leik í Meistaradeildinni og hefur þá eins og áður segir ekki unnið í síðustu þremur deildarleikjum. Atlético er í 6. sæti deildarinnar með 24 stig þrettán stigum frá toppnum.

Villareal lagði þá Espanyol að velli, 1-0. Franski markvörðurinn Benjamin Lecomte gerði sjálfsmark á 64. mínútu. Fyrst varði hann skot sem fór af stönginni á leikmann Villarreal og kom hann boltanum fyrir en Lecomte sparkaði boltanum óvænt í eigið net.

Sevilla tapaði þá fyrir Real Sociedad, 2-1. Alexander Sorloth kom Sociedad yfir á 20. mínútu og átta mínútum síðar var Ivan Rakitic rekinn af velli í liði Sevilla. Gestirnir misstu annan mann af velli er Tanguy Nianzou fékk að líta rauða spjaldið og nýtti Sociedad sér liðsmuninn og bætti við öðru í gegnum Brais Mendez.

Rafa Mir minnkaði muninn undir lok fyrri hálfleiks en liðið komst ekki lengra en það. Lokatölur 2-1 fyrir Sociedad sem er í þriðja sæti með 26 stig.

Úrslit og markaskorarar:

Espanyol 0 - 1 Villarreal
1-0 Benjamin Lecomte ('64 , sjálfsmark)

Almeria 1 - 0 Getafe
1-0 Leo Baptistao ('26 )
Rautt spjald: Rodrigo Ely, Almeria ('87)

Mallorca 1 - 0 Atletico Madrid
1-0 Vedat Muriqi ('16 )

Sevilla 1 - 2 Real Sociedad
0-1 Alexander Sorloth ('20 )
0-2 Brais Mendez ('36 )
1-2 Rafa Mir ('44 )
Rautt spjald: ,Ivan Rakitic, Sevilla ('28)Tanguy Nianzou, Sevilla ('34)
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 37 27 4 6 97 37 +60 85
2 Real Madrid 37 24 7 6 74 38 +36 79
3 Atletico Madrid 37 20 11 6 60 29 +31 71
4 Athletic 37 18 14 5 53 26 +27 68
5 Villarreal 37 19 10 8 65 47 +18 67
6 Betis 37 16 12 9 55 45 +10 60
7 Celta 37 15 8 14 56 54 +2 53
8 Osasuna 37 11 16 10 45 51 -6 49
9 Vallecano 37 12 13 12 39 44 -5 49
10 Mallorca 37 13 9 15 34 42 -8 48
11 Valencia 37 11 13 13 43 52 -9 46
12 Real Sociedad 37 13 7 17 33 42 -9 46
13 Sevilla 37 10 12 15 40 49 -9 42
14 Girona 37 11 8 18 42 54 -12 41
15 Getafe 37 10 10 17 31 36 -5 40
16 Espanyol 37 10 10 17 38 49 -11 40
17 Alaves 37 9 12 16 36 47 -11 39
18 Leganes 37 8 13 16 36 56 -20 37
19 Las Palmas 37 8 8 21 40 59 -19 32
20 Valladolid 37 4 5 28 26 86 -60 17
Athugasemdir
banner