Argentíski töframaðurinn Lionel Messi er af mörgum talinn vera einn besti knattspyrnumaður fyrr og síðar.
Lionel Messi hefur síðustu ár verið eitt stærsta andlit gosdrykkjarins Pepsi. Hann hefur tekið þátt í fjölda auglýsinga sem að slegið hafa í gegn.
Myndband birtist á samfélagsmiðlum í fyrradag þar sem að Messi stillir Pepsi-flösku ofan á bolta, hann sparkar síðan boltanum í gegnum lítinn hring sem er í nokkurri fjarlægð, Pepsi-flaskan skýst upp, fer í hring og endar á jörðinni. Sjón er sögu ríkari.
Messi hefur verið að glíma við meiðsli og byrjaði til að mynda á varamannabekknum gegn Real Madrid í vikunni.
Barcelona á leik í kvöld gegn Athletic Bilbao og vonast stuðningsmenn Barcelona eftir því að Messi verði í byrjunarliði liðsins.
Hér að neðan má sjá myndband af þessum frábæru tilþrifum Messi með Pepsi-flösku.
Messi being GOAT. 🐐 pic.twitter.com/WR7ieS0kZt
— SPORTbible (@sportbible) February 8, 2019
Athugasemdir