Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
Rúnar Kristins: Hann er nánast eins og nýr leikmaður
Lúkas Logi: Vinnum sem lið og klárum leikinn saman
Haddi: Veit ekki hvort þetta sé "fair play" eða ekki
Segir þriðja liðið það slakasta á vellinum - „Strákur alinn upp í Kópavogi og skilur ekki norðlenskuna“
Sölvi Geir: Áttum inni víti
Alexsandar Linta: Þegar maður tapar er maður aldrei viss
Hrafn Tómasson: Kom ekkert annað til greina en að koma grjótharður til baka
Hemmi: Fínt að byrja snemma og meira eftir af helginni
Siggi Höskulds: Rosalega fá lið sem ráða við KR á þessu tempói
Óskar Hrafn: Að sækja markmann er ozempic leiðin
Alex Freyr: Framkvæmdastjóri með öll önnur verkefni nema leikmannamál, hvað þýðir það?
Cecilía Rán: Vorum nálægt því að skora á móti þeim síðast
   þri 12. nóvember 2013 14:10
Elvar Geir Magnússon
Sölvi Ottesen: Reyni að sanna fyrir Lars að ég eigi að byrja
Sölvi á æfingu í dag.
Sölvi á æfingu í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðvörðurinn Sölvi Geir Ottesen er kominn aftur í íslenska landsliðshópinn en hann hefur staðið sig mjög vel í hjarta varnarinnar hjá Ural í rússnesku úrvalsdeildinni.

„Mér hefur gengið mjög vel persónulega og ég er búinn að spila sex leiki og þeir hafa gengið vel. Líkaminn er mjög góður, formið og standið í fínu lagi. Það gengur allt mjög vel," segir Sölvi.

Hann var úti í kuldanum hjá FC Kaupmannahöfn en gekk í raðir Ural sem er í fjórtánda sæti af sextán liðum rússnesku deildarinnar.

„Þetta eru nýliðar og það er alltaf erfitt fyrir nýliða að koma sér í gang í deildinni. Þetta hefur verið ströggl og mun vera það áfram það sem eftir er af tímabilinu. Við verðum bara að hafa trú á þessu."

„Þetta er mjög sterk deild, sérstaklega efstu sex liðin. Það er mjög gaman að eigast við svona sterk lið. Ég hef mjög gaman að þessu."

Sölvi er hæstánægður með að vera kominn aftur í hópinn og hlakkar til komandi leikja gegn Króatíu.

„Ég var staðráðinn í að gera allt sem ég gæti til að koma mér í hópinn fyrir þetta verkefni. Ég mun reyna allt til að vera með í þessu. Ég mun gera allt til að sanna fyrir Lars að ég eigi að vera í byrjunarliðinu en þetta verður bara að koma í ljós. Ef ég er á bekknum mun ég styðja þá sem spila í staðinn eins vel og ég get."

Viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner