Tottenham að vinna kapphlaupið um Robertson - Neymar til Bandaríkjanna? - Rogers eftirsóttur
Óli Skúla: Það er vinna framundan
Sölvi Geir: Ég veit ekki hvaða rök það eru
Anton um mistökin: Gylfi sá sem maður hefði síst viljað senda á
Gylfi Sig: Í 99 skiptum af 100 fer þessi bolti langt yfir mig
Nýliðinn Linda Líf: Hann sendi á mig, ég svaraði, hann hringdi svo og lét mig vita
Sá skemmtilegasti spilar í Garðabæ - „Stjörnumenn megi alveg vera spenntir"
Yngsti aðalmarkvörðurinn í Bestu - „Erfiðir átta mánuðir"
Thelma Karen: Bjóst ekki við svona stóru hlutverki
Álitið - Hver verður skemmtilegastur í viðtölum?
Höskuldur hungraður: Ætlum að svara fyrir síðasta tímabil
Veit ekki hvort Blikarnir fari í rokk og ról
Óli Skúla: Erum með þrjá öfluga miðverði
Sveindís: Komið og horfið á okkur vinna Úkraínu
Fyrirliðinn á leið í sinn fyrsta leik í efstu deild - „Pressan kemur frá sjálfum mér"
Álitið - Hver er huggulegastur?
„Svíafíflið þitt“ - Gæðastjórinn heldur rígnum lifandi
Hólmar Örn: Hefði engu máli skipt hvernig við hefðum æft
Guðrún sendir skýr skilaboð fyrir heimaleikina
Katla: Er alltaf að segja henni að koma og spila með íslenska landsliðinu
Sölvi Geir: Skotmarkið á okkur er stærra og við þurfum að gera meira
banner
   fim 12. nóvember 2015 17:00
Elvar Geir Magnússon
Gylfi Þór: Spilum boltanum með jörðinni eins og við getum
LG
Borgun
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gylfi Þór Sigurðsson segir að leikmenn séu vel gíraðir fyrir komandi vináttulandsleik gegn Póllandi sem verður annað kvöld í Varsjá.

„Maður veit ekki hvað Pólland ætlar að gera, hvort þeir breyti liðinu mikið, en leikvangurinn er mjög flottur þó grasið sé ekkert sérstakt. Vonandi verður þetta góður leikur," segir Gylfi.

„Þó að við verjumst mjög lengi í leikjum þá reynum við oftast að spila boltanum eins mikið með jörðinni og við getum. Það gætu komið inn nýjir leikmenn sem hafa lítið spilað með landsliðinu áður en við reynum að láta þeim líða vel og hjálpa þeim að komast sem fyrst í gírinn með liðinu."

Gengi Íslands í vináttuleikjum undanfarin ár hefur ekki verið sérstakt hvað úrslit varðar meðan vel hefur gengið í keppnisleikjum.

„Við erum að nýta vináttuleikina til að breyta liðinu og leyfa þeim að spila sem hafa minna spilað og prófa nýja hluti. Það hefur gengið mjög vel í tveimur síðustu undankeppnum en auðvitað skipta æfingaleikirnir máli, varðandi FIFA-listann og svona," segir Gylfi en viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner
banner