Steven Caulker segist eiga sér það markmið að verða stjóri á hæsta stigi fótboltans. Hann er núna án félags en hefur verið sterklega orðaður við Stjörnuna í Garðabæ en hann sást á leik liðsins gegn KR á dögunum.
Caulker ræddi við talkSPORT í Englandi fyrir stuttu þar sem hann sagði að hann væri að leitast eftir næsta skrefi innan fótboltans.
Caulker ræddi við talkSPORT í Englandi fyrir stuttu þar sem hann sagði að hann væri að leitast eftir næsta skrefi innan fótboltans.
„Markmið mitt er að verða stjóri í ensku úrvalsdeildinni á næstu tíu árum. Hvernig ég fer að því mun koma í ljós," sagði Caulker.
„Ég er að leggja mikið á mig. Ég hef verið að taka þjálfararéttindin og hef verið að læra af þeim fjölmörgu sem ég þekki innan fótboltans."
Það er spurning hvort Caulker muni koma inn í þjálfarateymi Stjörnunnar ásamt því að spila en Stjarnan hefur í raun ekki verið með aðstoðarþjálfara í sumar.
Talar opinskátt um spilafíknina
Caulker var á sínum tíma einn efnilegasti varnarmaður Englendinga en hann lenti í vandræðum utan vallar með áfengi, veðmál og þunglyndi. Hann er ekki að fela neitt og ræðir opinskátt um þetta allt saman.
„Spilafíknin hafði áhrif á allan minn feril og svo fór ég að drekka of mikið þar sem ég var að reyna að fela sorgina. Ég var með gríðarlegt þunglyndi og áður en ég tók á því, áður en ég tók á þessu öllu, var ég í algjöru rugli," segir Caulker.
„Ég þurfti að taka ábyrgð og ég gerði það ekki fyrr en ég var 26 eða 27 ára gamall."
Caulker segist hafa misst ástvini út af fíknivandamálum en hann hefur lagt gríðarlega mikið á sig til að takast á við þessi vandamál. „Ég verð að taka þetta dag fyrir dag og það er mikil vinna fyrir mig að halda mér á beinu brautinni," segir Caulker sem verður mögulega leikmaður Stjörnunnar þegar félagaskiptaglugginn opnar í sumar. Enn á eftir að staðfesta það.
Athugasemdir