Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   þri 14. apríl 2026 23:13
Brynjar Ingi Erluson
Undankeppni HM kvenna: Englendingar unnu heimsmeistarana - Grátlegt jafntefli hjá Betu
Kvenaboltinn
Lauren Hemp fagnar sigurmarki sínu gegn Spánverjum
Lauren Hemp fagnar sigurmarki sínu gegn Spánverjum
Mynd: EPA
Elísabet Gunnars er þjálfari Belgíu
Elísabet Gunnars er þjálfari Belgíu
Mynd: EPA
Spilað var um alla Evrópu í undankeppni heimsmeistaramóts kvenna í kvöld þar sem Evrópumeistarar Englendinga unnu meðal annars frækinn 1-0 sigur á heimsmeisturum Spánverja á Wembley.

England og Spánn leika bæði í C-riðli með Íslandi en þau voru jöfn að stigum fyrir leikinn.

Þjóðirnar mættust síðast í keppnisleik í úrslitaleik Evrópumótsins á síaðsta ári þar sem England hafði betur og var það sama upp á teningnum í kvöld.

Það tók Lauren Hemp aðeins þrjár mínútur að gera sigurmarkið og er England með fullt hús stiga á toppnum eftir þrjá leiki og nær því að komast á heimsmeistaramótið.

England er semsagt á toppnum með 9 stig á meðan Spánn er í öðru með 6 stig. Efsta sætið gefur farseðil beint á HM en annað og þriðja sætið þátttöku í umspilið.

Í A-riðli unnu Ítalir 6-0 stórsigur á Serbíu á meðan Danir unnu grannaslaginn við Svía, 2-1. Danir eru á toppnum með 7 stig, Svíar í öðru með 4 stig og Ítalír í þriðja með jafnmörg stig, en Svíar hafa betur í innanbyrðisviðureignum.

Hollendingar unnu Frakka, 2-1, í B-riðli og þá unnu Írar 3-2 sigur á Pólverjum í sama riðli. Holland er í efsta sæti með 7 stig, Frakkar í öðru með 6 stig og Írar í þriðja sæti með þrjú stig.

Þjóðverjar eru með fullt hús stiga í C-riðli eftir að hafa unnið Austurríki 5-1. Noregur vann á meðan 5-0 stórsigur á Slóveníu, en Noregur er í öðru sæti riðilsins með 6 stig og Slóvenar í þriðja með þrjú stig.

Elísabet Gunnarsdóttir og stöllur hennar í belgíska landsliðinu gerðu grátlegt 1-1 jafntefli við Skotland í D-riðli B-deildar.

Sari Kees kom Belgum yfir á 18. mínútu en seint í uppbótartíma jöfnuðu Skotar og héltu þar af leiðandi toppsætinu á markatölu en bæði lið eru með 7 stig.

Úrslit og markaskorarar:

A-riðill:

Serbía 0 - 6 Ítalía
0-1 Cristiana Girelli ('20 )
0-2 Elisabetta Oliviero (35 )
0-3 Martina Lenzini ('45 )
0-4 Adrianna Caruso ('61 )
0-5 Sofia Cantore ('88 )
0-6 Giada Greggi ('90 )

Svíþjóð 1 - 2 Danmörk
1-0 Monica Jusu Bah ('8 )
1-1 Pernille Harder ('30 )
1-2 Janni Thomsen ('90 )

B-riðill:

Holland 2 - 1 Frakkland
1-0 Renee van Asten ('11 )
1-1 Sandy Baltimore ('54 )
2-1 Esmee Brugts ('68 )

Pólland 2 - 3 Írland
0-1 Emily Murphy ('12 )
0-2 Katie McCabe ('20 )
1-2 Tanja Pawollek ('43 )
1-3 Marissa Sheva ('59 )
2-3 Ewa Pajor ('78 )

C-riðill:

England 1 - 0 Spánn
1-0 Lauren Hemp ('3 )

D-riðill:

Noregur 5 - 0 Slóvenía
1-0 Ada Hegerberg ('45 )
2-0 Julie Blakstad ('69 )
3-0 Caroline Graham Hansen ('76 )
4-0 Karina Sævik ('86 )
5-0 Ada Hegerberg ('88 )

Þýskaland 5 - 1 Austurríki
1-0 Nicole Anyomi ('17 )
2-0 Vivien Endemann ('52 )
3-0 Sarah Puntigam ('68, sjálfsmark )
4-0 Jule Brand ('76 )
4-1 Chiara D'Angelo ('77 )
5-1 Lea Schuller ('83 )

B-deild:

Skotland 1 - 1 Belgía
0-1 Sari Kees ('18 )
1-1 Kathleen McGovern ('90 )
Slapp
banner