Hörður Björgvin Magnússon, leikmaður Spezia og U21 landsliðsins, er spenntur fyrir komandi leik gegn Frakklandi í undankeppni EM 2015.
Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli í kvöld klukkan 18:30, en Frakkar eru án vafa sterkasti mótherji Íslands í riðlinum.
„Þetta er stórleikur og gaman fyrir okkur að sjá hvernig við stöndum gegn svona stóru liði,“ sagði Hörður Björgvin við Fótbolta.net.
,,Frakkar urðu heimsmeistarar í fyrra og það eru margir strákar sem eru í þessu liði núna. Við vitum að þetta verður erfitt en við gerum okkar besta.“
Franska U21 landsliðið er án nokkurra stórstjarna sem eru gjaldgengar, en þar á meðal er liðsfélagi Harðar frá Juventus, Paul Pogba. Hörður viðurkennir að það hefði verið gaman að mæta honum.
„Ég hringdi í hann áður en ég kom til landsins og spurði hvort hann væri að koma á klakann. Hann sagði nei, því hann var valinn í A-landsliðið, en það væri gaman að kljást við hann,“ sagði Hörður, sem er bjartsýnn fyrir leikinn.
„Það er bullandi séns. Við bara spilum okkar bolta, við vitum að við erum mjög góðir og við getum gert góða hluti. Við getum alltaf beitt góðum skyndisóknum og skorað mörk.“
Viðtalið má sjá hér að ofan.






















