Evrópumót U21 landsliða er í fullum gangi þessa dagana og voru nokkrir áhugaverðir slagir á dagskrá í dag.
Frændur okkar frá Danmörku mættu Hollandi í annari umferð riðlakeppninnar og lentu undir snemma leiks. Það kom þó ekki að sök því William Osula, sóknarmaður Newcastle, svaraði fyrir sína menn.
Osula jafnaði metin á 35. mínútu og kom Dönum svo yfir í upphafi síðari hálfleiks með því sem reyndist sigurmarkið.
Hollendingar sóttu stíft á Dani en tókst ekki að jafna leikinn á ný svo lokatölur urðu 2-1 fyrir Dani. Gríðarlega svekkjandi fyrir Holland sem gerði óvænt jafntefli við Finnland í fyrstu umferð.
Þjóðirnar eru einnig með Úkraínu í riðli og sigruðu Úkraínumenn þægilega gegn Finnum í dag 2-0. Danmörk lagði Úkraínu í fyrstu umferð og trónir á toppi riðilsins, sem þýðir að Úkraína og Holland mætast í úrslitaleik í lokaumferð riðlakeppninnar. Þar mun jafntefli nægja fyrir Úkraínu á meðan Hollendingar þurfa sigur.
Stjörnum prýtt lið Englendinga gerði þá markalaust jafntefli við Slóveníu á meðan Þýskaland lagði Tékkland auðveldlega að velli.
Englandi tókst ekki að skora þrátt fyrir þokkalega yfirburði en Jarell Quansah, Tino Livramento, James McAtee, Harvey Elliott og Archie Gray voru meðal byrjunarliðsmanna.
Þjóðverjarnir skiptu þá mörkunum jafnt á milli sín til að komast í fjögurra marka forystu gegn Tékklandi en lokatölur þar urðu 4-2.
Holland 1 - 2 Danmörk
1-0 Oliver Provstgaard ('19 , sjálfsmark)
1-1 William Osula ('35 )
1-2 William Osula ('47 )
Finnland 0 - 2 Úkraína
0-1 Vladyslav Vanat ('28 )
0-2 Maksym Bragaru ('49 )
Rautt spjald: Volodymyr Brazhko, Ukraine U-21 ('90)
England 0 - 0 Slovenía
Tékkland 2 - 4 Þýskaland
0-1 Nicolo Tresoldi ('34 )
0-2 Paul Nebel ('41 )
0-3 Nick Woltemade ('54 )
0-4 Eric Martel ('59 )
1-4 Bright Arrey-Mbi ('61 , sjálfsmark)
2-4 Karel Spacil ('66 )
Athugasemdir