Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Pogba að fara til Mónakó - Newcastle vill Pedro
banner
   lau 14. júní 2025 16:00
Brynjar Ingi Erluson
Yamal deildi mynd af sér og Nico - Vinirnir gætu sameinast á ný
Mynd: EPA
Spænska félagið Barcelona hefur mikinn áhuga á að landa Nico Williams, vængmanni Athletic Bilbao, í sumar og virðist Lamine Yamal, leikmaður Börsunga, ýta undir það á Instagram.

Barcelona reyndi að fá Nico síðasta sumar en hafði ekki ráð á honum og fór það svo að hann tók annað tímabil með uppeldisfélaginu.

Nico er 22 ára gamall og fór mikinn með spænska landsliðinu er það vann Evrópumótið á síðasta ári.

Hann og Yamal skildu andstæðinga sína eftir í rykinu, en þeir deila sérstöku vinasambandi. Yamal birti mynd af sér og Nico á Instagram í gær í kjölfar frétta um að Barcelona væri búið að funda með umboðsmanni Nico og ýtir hann þar sterklega undir að vinirnir muni sameinast á ný.

Arsenal og Bayern München eru einnig með hann efstan á óskalistanum, en samkvæmt spænsku miðlunum er leikmaðurinn mest spenntur fyrir því að fara til Barcelona.

Nico er með 62 milljóna evra riftunarákvæði í samningi sínum, sem Barcelona er sagt reiðubúið að virkja.


Athugasemdir
banner
banner