Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Pogba að fara til Mónakó - Newcastle vill Pedro
   fös 13. júní 2025 23:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fiorentina leiðir kapphlaupið um hinn 39 ára gamla Dzeko
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Edin Dzeko virðist vera á leiðinni aftur í ítalska boltann en ítalskir fjölmiðlar greina frá því að Fiorentina leiði kapphlaupið.

Dzeko er orðinn 39 ára gamall en samningur hans við Fenerbahce rann út í sumar. Hann er ekki á þeim buxunum að leggja skóna á hilluna.

Lið í ítölsku deildinni hafa sýnt honum áhuga en Bologna var fyrst að borðinu. Nú er talað um að Fiorentina sé búið að blanda sér í baráttuna og leiði kapphlaupið.

Þessi fyrrum framherji Man City gekk til liðs við Fenerbahce árið 2023 eftir að hafa spilað með Inter og Roma á Ítalíu frá 2016.
Athugasemdir
banner