Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
   sun 15. júní 2025 15:30
Brynjar Ingi Erluson
Ter Stegen samþykkir að ganga í raðir Galatasaray
Mynd: EPA
Þýski markvörðurinn Marc-andré ter Stegen er sagður hafa náð munnlegu samkomulagi við tyrkneska meistaraliðið Galatasaray, en Fanatik og Sport greina frá.

Barcelona keypti á dögunum Joan Garcia frá Espanyol og ætlar þá að framlengja samning Wojciech Szczesny.

Samkeppnin verður mikil á næsta tímabili og ólíklegt að Ter Stegen verði kostur númer eitt í markið, en hann er sagður afar óánægður með stöðuna og sé að hugsa sér til hreyfings.

Tyrkneski miðillinn Fanatik segir að Galatasaray hafi þegar náð munnlegu samkomulagi við markvörðinn og ætli nú að ræða við Barcelona.

Félagið vonast til að fá Ter Stegen ódýrt og ef það gengur ekki upp mun það leitast eftir því að fá hann á láni út tímabilið.

Sport tekur undir þessi orð og segir koma til greina að Ter Stegen verði lánaður til Galatasaray með möguleika á að gera skiptin varanleg á næsta ári.

Ter Stegen er 33 ára gamall og verið á mála hjá Barcelona frá 2014. Hann var varamarkvörður fyrir Claudio Bravo fyrstu ár sín áður en hann tók við sem aðalmarkvörður árið 2016.
Athugasemdir
banner
banner