Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Pogba að fara til Mónakó - Newcastle vill Pedro
   lau 14. júní 2025 20:07
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Quansah tilbúinn að taka næsta skref
Mynd: EPA
Jarell Quansah, varnarmaður Liverpool, er sagður vera undir smásjá Leverkusen.

Quansah er 22 ára gamall miðvörður en hann var á láni hjá Bristol Rovers fyrri hluta ársins 2023. Hann spilaði síðan sinn fyrsta leik fyrir Liverpool í lok ágúst sama ár.

Hann hefur leikið 58 leiki fyrir liðið en hann segist vera tilbúinn að taka næsta skref á ferlinum.

„Ég ætla ekki að fara of hátt né of lágt með neitt. Ég get lært mikið af þeim þremur tímabilum sem ég hef átt í atvinnumennsku. Frá Bristol Rovers þar til núna, horfandi til baka, þá er ég í mjög góðri stöðu til að taka næsta skref. Það felst í því að leggja hart að sér og vera einbeittur á það sem ég get stjórnað," sagði Quansah.

„Hvað varðar framtíðina, þá mun hún koma mér í besta standið ef ég held bara hausnum niðri og held áfram að leggja hart að mér.“
Athugasemdir
banner
banner