Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
banner
   lau 14. júní 2025 08:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fenerbahce vill fá Walker
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tyrkneska félagið Fenerbahce hefur áhuga á að fá Kyle Walker, bakvörð Man City, til liðs við sig í sumar.

Walker er ekki lengur inn í myndinni hjá Pep Guardiola en hann var sendur á lán til AC Milan síðasta sumar.

Þessi 34 ára gamli Englendingur fór til Milan í janúar og félagið var með kauprétt en ákvað að nýta hann ekki.

Jose Mourinho er stjóri Fenerbahce en félagið ætlar að styrkja hópinn til að vinna titilinn en liðið hefur verið í 2. sæti fjögur ár í röð.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner
banner