Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
   sun 15. júní 2025 17:00
Brynjar Ingi Erluson
Mourinho fundaði með Son
Jose Mourinho og Heung-Min Son funduðu um framtíð Suður-Kóreumannsins
Jose Mourinho og Heung-Min Son funduðu um framtíð Suður-Kóreumannsins
Mynd: EPA
Jose Mourinho, þjálfari Fenerbahce í Tyrklandi, fundaði á dögunum með suður-kóreska sóknarmanninum Heung-Min Son sem er sagður spenntur fyrir hugmyndinni að spila aftur fyrir portúgalska þjálfarann.

Tyrkneski blaðamaðurinn Yagiz Sabuncuoglu segir að Mourinho og Son hafi fundað til að ræða framtíð leikmannsins.

Son er 32 ára gamall og gegnir hlutverki fyrirliða hjá Tottenham, en hann á ár eftir af samningi sínum við Lundúnafélagið og ekkert sem bendir til þess að sá samningur verði framlengdur.

Samband hans og Mourinho er sagt afar gott en þeir unnu saman hjá Tottenham frá 2019 til 2021 áður en Portúgalinn var rekinn, stuttu fyrir bikarúrslitaleik.

Sabuncuoglu segir að fundur þeirra hafi gengið vel og að Son sé opinn fyrir því að ganga í raðir Fenerbahce. Fichajes segir að tyrkneska félagið sé reiðubúið að greiða honum 12 milljónir evra í árslaun.

Fenerbahce mun nú ræða næstu skref við Tottenham, en enska félagið mun vilja að minnsta kosti 50 milljónir punda.

Son er í miklum metum hjá stuðningsmönnum og er alls ekki útilokað að hann klári samninginn hjá enska félaginu, en hann á enn eftir að ræða við Thomas Frank, nýjan stjóra Tottenham, um framtíðina. Það mun væntanlega gerast á næstu dögum, en Son er þessa stundina í fríi eftir langt tímabil.
Athugasemdir
banner
banner