Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
   sun 15. júní 2025 15:45
Brynjar Ingi Erluson
Garnacho vill vera áfram á Englandi
Mynd: EPA
Alejandro Garnacho, leikmaður Manchester United, er með það í forgangi að spila áfram í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

Garnacho mun yfirgefa United í sumarglugganum en það var ákveðið eftir hitafund með Ruben Amorim, stjóra félagsins, þar sem hann hraunaði yfir Argentínumanninn og sagðis honum að leggjast á bæn um að hann myndi finna sér nýtt félag í sumar.

Fabrizio Romano segir að Garnacho vilji helst af öllu spila áfram á Englandi, en Chelsea er það lið sem hefur sýnt honum mestan áhuga af ensku liðunum.

Bayer Leverkusen og Napoli eru einnig áhugasöm um Garnacho, en það er þó hægara sagt en gert fyrir félögin að greiða há laun hans ofan á 70 milljóna punda verðmiðann.

Garnacho, sem er tvítugur, er uppalinn hjá Atlético Madríd, en hann kom til United árið 2020 og spilað stórt hlutverk í aðalliðinu frá 2022.
Athugasemdir
banner
banner